Fara í efni
Fréttir

Samið við Samtökin 78 um hinseginfræðslu

Samningurinn undirritaður í dag. Frá vinstri: Heimir Örn Árnason, forseti bæjarstjórnar, Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri, Daníel E. Arnarson, framkvæmdastjóri Samtakanna ´78, og bæjarfulltrúarnir Hilda Jana Gísladóttir og Sunna Hlín Jóhannesdóttir. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson

Samstarfssamningur Akureyrarbæjar og Samtakanna ´78 um þjónustu og fræðslu sem samtökin veita í sveitarfélaginu var undirritaður í dag. Sólin skein og fáni fjölbreytileikans blakti við hún þegar Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri á Akureyri og Daníel E. Arnarson framkvæmdastjóri Samtakanna ´78 skrifuðu undir samninginn á stéttinni framan við Amtsbókasafnið.

„Fræðsla Samtakanna ’78 er vönduð hinseginfræðsla, byggir á gagnreyndum aðferðum, nýjustu rannsóknum, og fer fram í góðu samráði við hinsegin fólk. Samkvæmt samningi sveitarfélagsins við samtökin verður veitt fræðsla um kynhneigð, kynvitund, kyntjáningu og kyneinkenni fólks. Markmið fræðslunnar er fyrst og fremst að veita þekkingu á hinsegin málefnum,“ segir í tilkynningu frá Akureyrarbæ.

„Samningurinn kveður á um fræðslu til starfsfólks grunnskóla, nemenda grunnskóla, starfsfólks leikskóla, ungmenna í félags- og frístundamiðstöðvum, til stjórnenda sem starfa hjá Akureyrarbæ og til þjálfara íþróttafélaga. Einnig er í samningnum ákvæði um að ungmenni á Akureyri fái aðgang að ráðgjöf Samtakanna ´78 endurgjaldslaust.“

Samningurinn gildir frá haustönn 2023 til og með vorönn 2026.