Safnar myndbrotum úr sögu Akureyrar
Gömul ferðamannamyndbönd, myndefni úr dánarbúum og nýjar drónamyndir af bænum eru meðal þess sem Gylfi Gylfason safnar saman á YouTube-rásinni Akureyri. Markmiðið er að varðveita myndbrot sem sýna bæinn og breytingarnar sem þar hafa orðið en efnið gæti orðið enn áhugaverðara eftir því sem árin líða.
„Ég opnaði þessa rás aðallega til að skjalfesta það sem er til af vídeóum frá Akureyri,“ segir Gylfi Gylfason um YouTube-rásina Akureyri. Þar safnar hann saman gömlu myndefni úr bænum sem hann grefur oft upp á ótrúlegustu stöðum. Hann nefnir sem dæmi gömul ferðamannamyndbönd úr dánarbúum sem síðar hafa ratað á eBay-sölusíðuna. Þá leynast oft myndbrot frá Akureyri inni í lengri myndböndum á netinu sem fjalla að mestu um allt aðra staði.

Skjáskot úr myndbandi á YouTube-rásinni Akureyri sem sýnir svæðið þar sem Hilton hótelið er nú risið.
Áhugasamur um byggingarsöguna
Gylfi, sem kallar sig fyrrverandi Akureyring, segist sérstaklega leita eftir köflum sem hafa heimildagildi fyrir bæinn. Byggingarsaga Akureyrar er honum sérstaklega hugleikin og segist hann hafa gaman af því að skoða gamalt myndefni frá kunnuglegum stöðum og sjá hvernig umhverfið hefur breyst í gegnum áratugina. „Það sem ég hef voða gaman af er að horfa á svona fyrir og eftir myndir,“ segir hann. Sérstaklega þykir honum áhugavert að finna myndskeið sem tekin voru fyrir 40-60 árum í miðbæ Akureyrar og á öðrum kunnuglegum slóðum. Þannig sé hægt að bera gamla bæinn saman við þann sem Akureyringar þekkja í dag.
Gylfi lætur sér ekki aðeins nægja að grafa upp fortíðina. Hann er einnig að búa til heimildir fyrir framtíðina. Hann hefur meðal annars myndað byggingarsvæði á Akureyri úr lofti. Myndskeið af slíkum stöðum kunna að virðast hversdagsleg núna en hann telur að þau geti orðið áhugaverð heimild þegar fram líða stundir. „Þetta eru ekkert merkileg myndbönd í dag en eftir tuttugu ár kann fólk hins vegar að horfa á myndefnið öðrum augum og hugsa með sér að það hafi verið sniðugt að einhver skyldi hafa tekið breytingarnar upp,“ segir hann.
Sem dæmi um þessa skrásetningu nefnir Gylfi nýlega ferð í Hlíðarfjall þar sem hann myndaði aðstæður úr lofti. Hann hefur áður myndað fjallið síðsumars og þannig verða smám saman til myndbrot af sömu stöðum frá ólíkum tímum. Hugsun Gylfa er sú að einstök myndskeið, sem hvert um sig virðast kannski ekki merkileg á þeim degi sem þau eru tekin, geti síðar myndað stærri heild.

Dæmi um myndbönd sem eru inn á YoutTube-rásinni Akureyri. Gylfi safnar þar saman gömlu myndefni úr bænum sem hann grefur oft upp á ótrúlegustu stöðum. Hann nefnir sem dæmi gömul ferðamannamyndbönd úr dánarbúum sem síðar hafa ratað á eBay-sölusíðuna.
Gamlir bæjarhlutar í þrívídd?
Gylfi hefur einnig hug á að ganga lengra í að gera sögu bæjarins sýnilega. Hann hefur lengi langað til að endurgera gamla bæjarhluta Akureyrar í þrívídd og telur að framfarir í gervigreind geti auðveldað slíka vinnu. „Það eru svona ákveðnar götur hérna í bænum sem mig langar að endurgera á ákveðnu tímabili,“ segir hann. Hugmyndin er enn á þróunarstigi en tengist sama áhuga hans á því að varðveita og gera sýnilegar þær breytingar sem hafa orðið á Akureyri í gegnum tíðina.
Safn af sögubrotum
Akureyrarrásin er ekki eina YouTube-rásin sem Gylfi heldur úti. Hann rekur einnig rásina Just Icelandic, sem er mun stærri eða með um 111 þúsund áskrifendur og 32 milljón áhorf þegar viðtalið er tekið. Þar birtir Gylfi myndefni sem tengist Íslandi en hann hefur verið að vinna að því að byggja upp stórt safn af eigin myndefni, sem hann hefur m.a. selt erlendis í heimildamyndir o.fl. Akureyrarrásin er hins vegar annars eðlis. Gylfi segir þá rás ekki hafa náð þeim viðmiðum sem þarf til að fá auglýsingatekjur frá YouTube og lýsir henni því sem sjálfboðaverkefni. „Málið var raunverulega bara að hafa einhvern stað þar sem maður getur leyft þessum myndbrotum, þessum sögubrotum, að safnast saman á,“ segir Gylfi.