Fara í efni
Íþróttir

SA deildarmeistari í íshokkí - MYNDIR

Axel Orongan á fleygiferð á svellinu í gærkvöldi. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson.

Karlalið Skautafélags Akureyrar varð deildarmeistari í íshokkí í gærkvöldi, þegar það sigraði Skautafélag Reykavíkur 8:3 á Akureyri. Titillinn er í höfn þótt SA eigi þrjá leiki eftir, en fögnuður kvöldsins var þó látlaus; sá stóri, Íslandsbikarinn, er alltaf markmiðið og ekki verður fagnað af neinum krafti fyrr en hann fer á loft. Aldrei er svo sem hægt að slá neinu föstu en óhætt að fullyrða að ástæða er til mikillar bjartsýni; telja verður mjög líklegt að Akureyringar verði Íslandsmeistarar í vor.