Fara í efni
Fréttir

„Ríkið“ við Hólabraut verður Smáríkið

Áfengisala hefst á ný við Hólabraut 16 þar sem Vínbúðin var áður til húsa. Hér er Axel Birgisson, rekstrarstjóri Smáríkisins, sem opnar afhendingastöð fyrir netverslun fyrirtækisins í húsinu á þriðjudag.

Á þriðjudaginn mun aftur hefjast áfengissala í húsnæðinu sem áður hýsti Vínbúð ÁTVR  við Hólabraut, „Ríkið“ eins þær búðir eru oft kallaðar. Það er Smáríkið, netverslun með áfengi, sem opnar þar sitt fyrsta útibú á landsbyggðinni en fyrirtækið hefur verið starfrækt í höfuðborginni í rúmlega tvö ár.

Eins og akureyri.net greindi frá opnaði nýlega verslunin Dýrabær í hluta af fyrrum húsnæði ÁTVR en Smáríkið mun opna í hinum hluta hússins. „Við höfum lengi horft til þessa markaðar og verið mjög spennt fyrir því að koma hingað,“ segir Axel Birgisson, rekstrarstjóri Smáríkisins. Húsnæðið, sem flestir Akureyringar þekkja vel, segir hann að sé algjör perla. „Það er um 60 ára saga af vínsölu í þessu húsi og um leið og við fréttum að það væri laust, þá var ekki eftir neinu að bíða,“ segir Axel en iðnaðarmenn voru á fullu að græja húsnæðið þegar blaðamaður leit þar við á föstudag.

Allt er að verða klárt fyrir opnun fyrstu afhendingarstöð Smáríkisins á landsbyggðinni. Ekki er um hefðbundna áfengisverslun að ræða heldur fer öll salan í gegn um netverslun en viðskiptavinir sækja pantanir í Hólabrautina eða geta pantað heimsendingu með Wolt. Opið verður til kl. 23 virka daga og til miðnættis um helgar.

Opið til miðnættis um helgar

Smáríkið hefur hingað til rekið fjórar afhendingarstöðvar í Reykjavík og er fimmta stöðin þar í undirbúningi. Að sögn Axels hefur starfsemin gengið vel frá upphafi og því hafi verið tímabært að færa út kvíarnar. „Við erum búin að vera í rúmlega tvö ár í Reykjavík og það hefur gengið mjög vel. Núna erum við að færa okkur út fyrir höfuðborgarsvæðið og Akureyri varð fyrir valinu.“

Viðskiptavinir Smáríkisins panta vörur í gegnum vefverslun og geta sótt pantanirnar í Hólabraut þegar afhendingarstöðin er opin. „Fólk getur ekki bara labbað inn og verslað. Þetta fer allt í gegnum vefverslunina okkar. Fólk getur aðeins sótt pantanir hingað,“ útskýrir Axel en til að tryggja aldursmörk þurfa viðskiptavinir að nota rafræn skilríki.

Afhendingarstöðin við Hólabraut verður opin frá kl. 10 á morgnana til 23 á kvöldin alla daga, en til miðnættis um helgar. Einnig verður boðið upp á heimsendingu í samstarfi við Wolt á opnunartíma. 

Þegar Axel er spurður um verð og vöruúrval hjá Smáríkinu miðað við Vínbúðina stendur ekki á svari. Segir hann að Smáríkið bjóði upp á yfir 400 vörutegundir og bæti reglulega við nýjum vörum í takt við óskir viðskiptavina. „Á öllum vörum sem við bjóðum upp á erum við ódýrari en Vínbúðin, og í sumum tilfellum umtalsvert ódýrari,“ segir Axel og bætir við að í tengslum við komu Smáríkisins til Akureyrar verða sérstök opnunartilboð í boði þar sem afslættir geta farið upp í 30%.