Fara í efni
Fréttir

Reiknivél um áhrif fjárlagafrumvarpsins

Framsókn hefur opnað vefinn utreikningur.is, þar sem almenningur getur skoðað hvernig helstu breytingar í fjárlagafrumvarpi næsta árs gætu haft áhrif á fjárhag heimilisins. Í reiknivélinni er meðal annars hægt að setja inn upplýsingar um fjölskyldustærð, tekjur, húsnæðislán, akstur, fyrirhugaðar framkvæmdir á húsnæði og afþreyingu. Út frá þeim upplýsingum eru reiknuð áætluð áhrif breytinga á sköttum, opinberum gjöldum og stuðningi við heimilin.

Í fréttatilkynningu frá Framsókn kemur fram að markmiðið sé að gera áhrif fjárlaga sýnilegri í daglegu lífi fólks og auðvelda almenningi að taka þátt í umræðunni um fjárlög og lífskjör. Notendur geta kynnt sér forsendur útreikninganna og breytt þeim til að sjá hvernig niðurstöðurnar breytast eftir eigin aðstæðum.

Í tilkynningunni segir Framsókn greiningu sína á fjárlagafrumvarpinu benda til þess að samanlögð áhrif skattahækkana, gjaldahækkana og skerðinga verði hlutfallslega mest fyrir tekjulægri heimili, sem hafi minna svigrúm til að mæta auknum útgjöldum.

Tekið er fram í fréttatilkynningunni að niðurstöður reiknivélarinnar séu áætlanir sem byggjast á upplýsingum notenda, forsendum útreikninganna og þeim þáttum sem reiknivélin nær til. Þær séu því ekki endanleg niðurstaða um áhrif fjárlagafrumvarpsins á hvert heimili.