Fara í efni
Menning

Regnbogi Kidda Torfa kominn á Spotify

Kristinn Torfason, forstöðumaður hjá búsetudeild Akureyrarbæjar, hefur samið fjölda laga og texta frá því hann var unglingur „en ekkert gert með það þar sem ég hef ekki haft aðstæður, kunnáttu eða fjármagn til að vinna það áfram – fyrr en nú,“ segir hann, en fyrsta lagið – Regnboginn – birti Kiddi opinberlega fyrir helgi þegar hinsegin dagar stóðu sem hæst.
 
„Lagið fjallar um nauðsyn þess að við erum öll ólík en þurfum á fjölbreytileikanum að halda,“ segir Kristinn, sem birtir lagið undir listamannsnafninu KiddiTorfa á öllum helstu streymisveitum.
 

„Með hjálp gervigreindarinnar hefur opnast nýr heimur möguleika fyrir einstaklinga eins og mig sem hef fyrst og fremst unnið þetta bara fyrir sjálfan mig og verið feiminn við að koma þessu á framfæri,“ segir Kristinn.

„Ég starfaði í mörgum hljómsveitum þangað til ég fór að vinna með fötluðum 1988 en síðan þá hefur það tekið allan minn tíma þó ég noti mér að semja til að vinna fyrst og fremst með sjálfan mig. Rútuslys sem ég lenti í 2023 ásamt samstarfsmönnum mínum fékk mig til að staldra við og huga meira að fleiri hlutum sem gleðja mig en vinnuna og eftir úrvinnslu þeirrar lífsreynslu þá fór boltinn að rúlla. Stefnan er á að gera albúm með lögum og er þetta fyrsta lagið af þeim sem ég hef hugsað mér að yrðu gefin út.“

Lagið má finna á öllum helstu streymisveitum sem fyrr segir – hér er það á Spotify: