Reagan, Gorbi, Hönd Guðs, Júróvisjón...
„1986,“ sagði góður maður við mig fyrr í sumar, með stjörnur í augunum. „Þvílíkt ár. Leiðtogafundurinn í Höfða og athygli heimsins beindist að Íslandi, Maradona vann HM í fótbolta og Ísland tók í fyrsta skipti þátt í Júróvisjón.“
Þannig hefst Orrablót dagsins, pistill Orra Páls Ormarssonar, sem að þessu sinni hverfur fjóra áratugi aftur í tímann. Akureyringurinn Orri blótar annan hvern föstudag fyrir akureyri.net.
Hann heldur áfram:
Einmitt það. Jú, jú, leiðtogafundinum mun enginn Íslendingur sem þá lifði nokkurn tíma gleyma. Ekki heldur Hönd Guðs og Marki aldarinnar hjá Maradona á HM, alla vega ekki við sparksjúklingarnir. En Júróvisjón? Veit það ekki. Hef aldrei áttað mig almennilega á því hvers vegna þessi þjóð lítur á þá árshátíð ófrumleikans sem vörðu á sinni vegferð.
Orrablót dagsins: Var 1986 besta ár sögunnar?