Rannsóknarstofa á starfsstöð Eflu
Þekkingarfyrirtækið Efla hefur komið á fót rannsóknarstofu á starfsstöð fyrirtækisins á Akureyri, til að mæta aukinni þörf, að því er segir á vef fyrirtækksins. „Með tilkomu hennar hefur leiðin að niðurstöðum styst og þjónusta við svæðið tekið framförum,“ segir þar. Hún starfar „samhliða rannsóknarstofu okkar í Reykjavík sem hefur verið starfrækt um árabil. Báðar rannsóknarstofurnar taka við sýnum frá öllu landinu.“
„Sérfræðingar EFLU hafa lengi greint byggingarefni vegna eigin verkefna. Með nýrri rannsóknarstofu skapast tækifæri til að veita öðrum fagaðilum sömu þjónustu. Meðal þeirra sem geta nýtt sér greiningarþjónustuna eru iðnmeistarar eða verktakar sem sinna úrbótum vegna raka- og mygluskemmda og tjónamatsaðilar eða dómskvaddir matsmenn í álitamálum þeim tengdum,“ segir á vef fyrirtækisins.
Auk greiningar veitir EFLA ráðgjöf við túlkun niðurstaðna, sem nýtist við ákvarðanir um næstu skref í úrbótum. „Á rannsóknarstofum EFLU er unnið samkvæmt skýrum verkferlum þar sem hreinlæti og rekjanleiki eru í fyrirrúmi. Verklagið er hannað til að koma í veg fyrir krossmengun, sem er forsenda þess að niðurstöður séu áreiðanlegar. Að greiningu lokinni fá viðskiptavinir ítarlegar upplýsingar um niðurstöðu, en greiningartími er að jafnaði innan við 10 virkir daga,“ segir á vefnum.
Umsjónarmaður rannsóknarstofunnar á Akureyri er líf- og auðlindafræðingurinn Heiðrún Eiríksdóttir. Hún hefur nær áratugar reynslu af greiningu myglusýna og starfaði áður hjá Náttúrufræðistofnun. Auk þess hefur hún aflað sér frekari sérþekkingar á greiningartækni í Hollandi.
„Ég hef starfað við greiningu myglusveppa um árabil og veit hversu mikilvægt það er að niðurstöður séu nákvæmar, áreiðanlegar og unnar af sérfræðingum með viðeigandi reynslu. Slíkar niðurstöður eru forsenda þess að fagaðilar geti metið ástand bygginga á réttan hátt og tekið upplýstar ákvarðanir um viðeigandi úrbætur. Það er því sérstaklega ánægjulegt að leiða nýja rannsóknarstofu EFLU á Akureyri og taka þátt í að styrkja þjónustuna á landsbyggðinni,“ segir Heiðrún.