Rakel var valin flytjandi ársins
Akureyringurinn Rakel Sigurðardóttir hlaut í gærkvöldi Íslensku tónlistarverðlaunin sem flytjandi ársins í flokknum „Önnur tónlist“. Verðlaunahátíðin er uppskeruhátíð þar sem saman kemur fólk úr öllum flokkum tónlistar og er verðlaunað fyrir það sem þótti standa upp úr á árinu 2025.
Rakel var tilnefnd til þrennra verðlauna; lagið always var tilnefnt sem lag ársins í flokknum „Önnur tónlist“ og platan a place to be sem plata ársins í sama flokki.
Veitt voru verðlaun í níu yfirflokkum: flytjandi ársins, söngur ársins, lög og tónverk ársins, plata ársins, tónlistarmyndband ársins, tónlistarviðburður ársins, upptökustjórn ársins, texti ársins og tónlistargrafík ársins. Í fyrstu fjórum flokkunum voru veitt verðlaun í nokkrum undirflokkum.

Hljómsveitin Todmobile hlaut heiðursverðlaun Íslensku tónlistarverðlaunanna í gær. Frá vinstri: Eyþór Arnalds, Andrea Gylfadóttir og Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson. Sá síðastnefndi er tónlistarstjóri Menningarfélags Akureyrar og Andrea, sem er akureyrskrar ættar, er nú kennari við Tónlistarskólann á Akureyri.
- Nánar hér um Todmobile af vef Íslensku tónlistarverðlaunanna.
- Frétt akureyri.net um tilnefningarnar: