Fara í efni
Fréttir

Rafbyssu beitt við handtöku á Akureyri

Lögreglan á Norðurlandi eystra beitti rafbyssu við handtöku 19 ára pilts á Akureyri síðastliðna nótt. Að sögn yfirmanns rannsóknardeildar lögreglunnar var pilturinn talinn hættulegur sjálfum sér og öðrum.

RUV segir frá málinu og í fréttinni kemur fram að lögreglan hafi ekki viljað gefa upp hvort pilturinn hafi verið vopnaður þegar aðgerðin fór fram. Hann var vistaður í fangageymslu en fékk aðhlynningu á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Samkvæmt upplýsingum lögreglu er það hefðbundið verklag eftir að rafbyssu hefur verið beitt.

Lögreglan hefur ekki staðfest hvort pilturinn sé enn í haldi eða hvort farið verði fram á gæsluvarðhald. Málið er til rannsóknar og lögreglan hefur ekki viljað veita frekari upplýsingar um atvikið. RUV hefur hins vegar eftir lögmanni piltsins að hann hafi enn verið á sjúkrahúsi um miðjan dag og ekki í fangaklefa. Lögmaðurinn gerir alvarlegar athugasemdir við vinnubrögð lögreglu og telur að lögreglan hafi gerst sek um brot í starfi við handtökuna.