Fara í efni
Fréttir

Óvissustig vegna landriss í Öskju

Öskjuvatn og Víti. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson.

Ríkislögreglustjóri hefur, í samráði við Lögreglustjórann á Norðurlandi eystra, lýst yfir óvissustigi vegna landriss í Öskju. „Síðustu vikur hafa mælst hraðar landbreytingar í Öskju, bæði á GPS-mælitæki staðsett þar og eins með nákvæmri úrvinnslu gervitunglamynda. Landrisið er rúmlega 7 sentimetrar sem telst mikið á þessu tímabili,“ segir í tilkynningu á vef Almannavarna.

„Líklegasta skýringin er að á 2-3 km dýpi sé kvika að safnast fyrir. Í næstu viku munu Veðurstofa Íslands og Jarðvísindastofnun Háskólans efla mælingar og vöktun í Öskju til þess að geta fylgst enn betur með hegðun eldstöðvarinnar.

Óvissustig almannavarna þýðir að aukið eftirlit er haft með atburðarás sem á síðari stigum gæti leitt til þess að heilsu og öryggi fólks, umhverfis eða byggðar verði ógnað. Að lýsa yfir óvissustigi er hluti af verkferlum í skipulagi almannavarna til að tryggja formleg samskipti og upplýsingagjöf á milli viðbragðsaðila.“