Fara í efni
Fréttir

Óvissustig vegna hættu á gróðureldum

Slökkviliðsmenn að störfum í sinubrunanum á Akureyri í morgun. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson.

Ríkislögreglustjóri hefur ákveðið, í samráði við lögreglustjóra og slökkviliðsstjórana á Norðurlandi eystra, að lýsa yfir óvissustigi almannavarna vegna hættu á gróðureldum. Þessi ákvörðun er byggð á að lítið hefur rignt á svæðinu undanfarið og veðurspá næstu daga sýnir heldur ekki neina úrkomu af ráði. Þetta þýðir að aðeins Austurland, Vestur Skaftafellssýsla og Vestmannaeyjar eru ekki á óvissu- eða hættustigi vegna gróðurelda.

Í dag var slökkvilið Akureyrar kallað út vegna sinubruna í norðanverðu Holtahverfi, eins og fram kom á Akureyri.net í morgun. Mikinn reyk lagði yfir svæðið, einnig yfir Oddeyrina og alveg inn á flugvöll. Í gær varð einnig sinubruni á Ólafsfirði, sem er í fyrsta skipti í langan tíma á því svæði.

Almenningur er hvattur til að sýna aðgát með opinn eld á svæðinu, ekki síst þar sem gróður er þurr. Það þarf ekki mikinn neista til þess að af verði stórt bál. Ef fólk verður vart við gróðurelda á strax að hringja í 112.

Óvissustig almannavarna þýðir að aukið eftirlit er haft með atburðarás sem á síðari stigum gæti leitt til þess að heilsu og öryggi fólks, umhverfis eða byggðar verði ógnað. Að lýsa yfir óvissustigi er hluti af verkferlum í skipulagi almannavarna til að tryggja formleg samskipti og upplýsingagjöf á milli viðbragðsaðila og almennings.

Hér á heimasíðu almannavarna má nálgast upplýsingar um ýmsar varnir til að draga úr hættu af gróðureldum, einnig eru góðar upplýsingar hér