Fara í efni
Fréttir

Óttuðust sýruleka en betur fór en á horfðist

Flutningaskipið Malik Arctica er það rauða. Skemmtiferðaskipið Norwegian Prima kom til Akureyrar í morgun og lagðist að Oddeyrarbryggju. Myndir: Skapti Hallgrímsson

Betur fer en á horfðist í gær þegar verið var að hífa tank með fosfórsýru í flutningaskipinu Malik Arctica sem liggur við bryggju á Akureyri. Taug slitnaði og tankurinn skall á þilfari skipsins, óttast var að sýran – sem er hættuleg, enda mjög ertandi – læki úr gámnum. Svo fór þó ekki en gámurinn skemmdist. Óhappið var laust eftir hádegi í gær, slökkviliðið var þegar ræst út og hefur unnið að því síðan að tæma tankinn og koma sýrunni í annan gám. Svæðið var rýmt í gær en fólki hleypt aftur inn í morgun.

Lögregla hefur vaktað athafnasvæði Eimskips síðan í gær.