Opnar verslun með Swisstrax gólfflísakerfi
Fyrirtækið Straxgólf opnar á morgun, þriðjudag, sýningarsvæði og verslun á Akureyri þar sem viðskiptavinir geta kynnt sér og skoðað gólfflísakerfið, og fengið ráðgjöf á staðnum. Straxgólf hefur starfað í sex ár sem umboðsaðili Swisstrax á Íslandi, en er nú í fyrsta skipti með aðgengilegt sýningarsvæði fyrir almenning á Akureyri, að því er fram kemur í tilkynningu frá fyrirtækinu.
„Swisstrax er leiðandi fyrirtæki á sínu sviði á heimsvísu, og eru flísarnar þekktar fyrir styrk, loftflæði, auðvelda uppsetningu og frábært útlit.
Þær henta vel í bílskúra, - verkstæði, - svalir og sólpalla, - iðnaðarbil, - líkamsræktarrými, - sýningarsali og fjölmörg önnur rými,“ segir í tilkynningunni.
Nýja verslunin og sýningarsvæðið er staðsett við Laufásgötu 9, skáhallt á móti þvottastöð Löðurs.
„Í tengslum við opnunina verður boðið upp á sérstakt vortilboð á Swisstrax gólflfísum, sem gildir til 30. apríl, en nánari upplýsingar um tilboðið er að finna á www.straxgolf.is.
Verslunin á Akureyri verður opnuð á morgun, þriðjudaginn 21. apríl, klukkan 16:00 og verður opið til kl. 19:00. Opið verður aðra virka daga í vikunni fram að helgi á sama tíma.
Upplýsingar um opnunartíma eftir það verður að finna á heimasíðu Straxgólf www.straxgolf.is, sem og á facebook-síðu Straxgólf.“