Opinn íbúafundur með innviðaráðherra

Opinn samráðsfundur Eyjólfs Ármannssonar innviðaráðherra með íbúum Norðurlands eystra verður haldinn á Akureyri á morgun, þriðjudaginn 12. ágúst kl. 16:45. Fundurinn verður haldinn á Múlabergi í Hótel Kea og er öllum opinn.
Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að tilgangur fundarins sé að kalla eftir sjónarmiðum íbúa og sveitarstjórnarfólks um málaflokka ráðuneytisins – samgöngur, sveitarstjórnar- og byggðamál og fjarskipti og stafræna innviði. Það muni m.a. nýtast í vinnu við stefnumótun og undirbúning áætlana á vegum ráðuneytisins, m.a. samgönguáætlun.
Fundurinn er liður í röð samráðsfunda innviðaráðherra um land allt. Fundurinn á Akureyri er fyrsti fundurinn í fundaröðinni. Fundirnir eru skipulagðir í samvinnu við landshlutasamtök sveitarfélaga.
Auk ráðherra mun Lára Halldóra Eiríksdóttir formaður Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) flytja erindi á fundinum. Fundarstjóri er Albertína F. Elíasdóttir framkvæmdastjóri SSNE. Að erindum loknum verður opnað fyrir almennar umræður.