Fara í efni
Mannlíf

Opið hús og sýning á morgun í Skógarlundi

Árleg vorsýning Skógarlundar verður haldin á morgun, þriðjudaginn 15. júní, frá klukkan 10.00 til 15.30. Þá verður opið hús og til sýnis og sölu verða allir listmunir sem fólkið í Skógarlundi hefur unnið síðastliðið ár og lengur.

Skógarlundur er miðstöð virkni og hæfingar fyrir fatlaða að Skógarlundi 1, rautt, áberandi hús.

Meðal muna verða leir-, gler- og trémunir ásamt vegglistaverkum og eldpappakubbum sem unnir eru úr tættum pappír. Í boði verða vöfflur og kaffi gegn vægu gjaldi ásamt tónlist sem verður spiluð klukkan 10.45 og 14.30.