Fara í efni
Íþróttir

Ollý hætt eftir 20 ára starf í hokkíinu

Elísabet Inga Ásgrímsdóttir, nýr formaður íshokkídeildar Skautafélags Akureyrar, og Ólöf Björk Sigurðardóttir, fráfarandi formaður og nú heiðursfélagi í Skautafélaginu. Mynd: sasport.is

Ólöf Björk Sigurðardóttir, eða Ollý eins flestir þekkja hana, hætti á dögunum sem formaður íshokkídeildar Skautafélags Akureyrar eftir að hafa gegnt því embætti í 20 ár. Á aðalfundi deildarinnar var hún jafnframt gerð að heiðursfélaga SA.

Við embætti hennar sem formaður hefur tekið Elísabet Inga Ásgrímsdóttir, sem er öllum hnútum kunnug innan félagsins og deildarinnar, hefur bæði spilað hokkí og krullu, verið í stjórn og starfað á leikjum, svo eitthvað sé nefnt. 

Sagt er frá formannsskiptunum á heimasíðu Skautafélagsins og þar eru Ollý færðar þakkir fyrir farsælt starf í þágu félagsins. 

Frétt SA:

Mikil tímamót eiga sér nú hjá íshokkídeild SA þar sem að formannsskipti eru að eiga sér stað. Ólöf Björk Sigurðardóttir eða Ollý eins og við þekkjum hana hefur látið af störfum sem formaður íshokkídeildarinnar eftir 20 ár sem formaður hennar. Við keflinu tekur Elísabet Inga Ásgrímsdóttir eða Beta eins og hún er jafnan kölluð.

Það hefur mikið vatn runnið til sjávar í íshokkdeildinni í 20 ára formennskutíð Ollýar en á þessum árum hefur deildin þróast, stækkað og verið einstaklega sigursæl. Hlutfall kvenna hefur vaxið mikið á þessum árum og er í dag yfir 40% iðkenda íshokkídeildarinnar. Heildariðkenndafjöldi hefur aldrei verið meiri en í dag en hún telur nú 300 iðkenndur þar af 240 yngri en 18 ára. Íshokkídeildin SA hefur líklega verið sigursælasta íþróttadeild landsins á þessum árum.

En betri arftaka að góðu búi er vandfundinn. Skautafélagið er Betu í blóð borið komandi úr mikilli skautafjölskyldu en Beta er afabarn Ágústar Ásgrímssonar eins stofnenda Skautafélags Akureyrar. Beta er öllum koppum kunnug í íshokkídeildinni enda búin að taka að sér hin ýmsu hlutverk í félaginu allt frá skautakennslu í grasrótinni að stjórnarstörfum og allt þar á milli.

Íshokkídeildin er því áfram í góðum höndum og um leið og við þökkum Ollý óendanlega fyrir allt sem hún hefur gert fyrir íshokkídeildina þá óskum Betu og nýju stjórninni hennar farsældar í sínum störfum fyrir félagið.