Ólíkt undirlag, sama útkoma – sigur Þórs
„Gamla Þórshjartað dældi á víxl stolti og gleði þegar ég mætti á Valsvöllinn á Hlíðarenda á sunnudaginn var til að sjá loksins leik í efstu deild í knattspyrnu eftir öll þessi ár.“
Þannig hefst Orrablót dagsins; pistill Orra Páls Ormarssonar, blaðamanns á Morgunblaðinu. Orri Páll skrifar pistil – Orrablót – annan hvern föstudag fyrir akureyri.net. og í dag á fóboltinn hug hans allan, eins og stundum áður.
Orri Páll var ánægður með sína menn en horfir um öxl eins og hans er von og vísa. Rifjar upp leik frá vorinu 1985; þá voru „dýrðartímar í sparksögu Þórs,“ segir hann, og í liðinu menn „sem aldrei höfðu heyrt talað um staðalbúnað eins og legghlífar, svoleiðis drasl þvældist bara fyrir. Þarna í áttunni tíðkaðist að olíubera leggi og læri rækilega fyrir leik til að snúa á kuldabola. Menn sáu hins vegar ekki fyrir að olían dró mölina ótæpilega í sig og eftir um 20 mínútna leik voru Nói, Moli og þessir gaurar komnir með þykkt lag af möl utan á lærin. Sem gerði þá bara ennþá óárennilegri.“
- Orrablót dagsins: Ólíkt undirlag, sama útkoma – sigur Þórs