Fara í efni
Fréttir

Öldrunarteymi stofnað á lyflækningadeild SAk

Í byrjun október sl. hófst þriggja mánaða tilraunaverkefni á Sjúkrahúsinu á Akureyri (SAk), þar sem sérfræðilæknar innan öldrunarlækninga sinna tíu sjúklingum á lyflækningadeild SAk. Um er að ræða bæði aldraða einstaklinga og sjúklinga í líknar- eða lífslokameðferð. Markmið teymisins er að leggja meiri áherslur á heildrænt öldrunarmat fyrir eldri einstaklinga, að því er segir í frétt á vef SAk.

Í fréttinni kemur ennfremur fram að ljóst sé að öldruðum einstaklingum fjölgi ört og þess vegna sé unnið að því að efla öldrunarlækningar á sjúkrahúsinu í tengslum við breyttar þarfir samfélagsins.

„Það er mjög ánægjulegt að við getum bætt við okkur verkefnum og orðið sýnilegri inni á lyflækningadeildinni. Fyrsti mánuðurinn hefur gengið vonum framar og það eru spennandi tímar framundan innan öldrunarlækninga á SAk,“ segir Valgerður Þorsteinsdóttir, sérfræðingur í öldrunarlækningum, í viðtali í fréttinni á vef SAk.