Fara í efni
Menning

Ólafarvaka haldin í Sigurhæðum á morgun

Samsett mynd - Harpa Barkardóttir, Ólöf frá Hlöðum, Fanney Kristjáns Snjólaugardóttir, Sigurhæðir og Þórgunnur Oddsdóttir.

Á sumarsólstöðum, laugardaginn 21. júní, verður haldin Ólafarvaka í Flóru menningarhúsi í Sigurhæðum á Akureyri - til heiðurs Ólöfu Sigurðardóttur skáldi frá Hlöðum.

Listasmiðja og tónleikar

Frá kl. 13 til 15 verður listsmiðja í anda Ólafar þar sem þátttakendum gefst kostur á að gera eigin skissubækur og klippiverk innblásin af verkum og lífsleið Ólafar. Leiðbeinandi er Þórgunnur Oddsdóttir og er smiðjan opin öllum eldri en 16 ára. Það þarf að skrá sig með því að senda póst á flora.akureyri@gmail.com. Þátttökugjald er 6.000 og er allt efni og áhöld innifalið ásamt hressingu.

Eftir smiðjuna hefst tónlistardagskráin Ómar Ólafar og hún byrjar kl 15. Harpa Barkardóttir og Fanney Kristjáns Snjólaugardóttir flytja nokkur lög sem tengjast menningararfi Ólafar, þar á meðal lag við Sólstöðuþulu Ólafar. Enginn aðgangseyrir er á tónleikana.

Huggulegt og endurnærandi síðdegi í fallegu umhverfi

Ólafarvaka er styrkt úr Menningar- og minningasjóði kvenna og er hluti af útgáfu Flóru menningarhúss í Sigurhæðum á verki Ólafar í formi bókar en verkið heitir Bernskuheimilið mitt. Laugardagurinn er síðasti dagur söfnunar á Karolina Fund fyrir bókinni og hægt er að óska eftir því að vera á þakkarlista í bókinni. Einnig verður tekið á móti forpöntunum í Sigurhæðum.