Ókeypis lagasmiðjur með Flammeus á Akureyri
Föstudaginn 3. apríl verða haldnar ókeypis lagasmiðjur í Tónlistarskólanum á Akureyri. Að þeim loknum verða tónleikar í Deiglunni þar sem afrakstur dagsins verður fluttur. Tumi Hrannar Pálmason kennir gestum smiðjunnar, en í tónlistarheiminum er hann betur þekktur undir listamannsnafninu Flammeus.
Það þarf ekki að hafa fyrri reynslu af lagasmíðum eða tónlistarnámi
„Ég er Akureyringur og MA stúdent og lærði sem unglingur á rafbassa í Tónlistarskólanum á Akureyri áður en ég flutti til Þýskalands, þar sem ég er núna að byrja aðra önn af fjórum í mastersnámi á rafbassa við Þýska ríkistónlistarháskólann í Mannheim,“ segir Tumi við blaðamann akureyri.net.
Lagasmiðjurnar standa frá kl. 10 til 16 og eru ætlaðar jafnt byrjendum sem lengra komnum. Meginumfjöllunarefni námskeiðsins verður uppbygging laga sem auðveld eru fyrir meðalmanninn að syngja með. „Það þarf ekki að hafa fyrri reynslu af lagasmíðum eða tónlistarnámi, heldur er áhersla lögð á að skapa aðgengilegt og uppbyggjandi umhverfi þar sem þátttakendur fá tækifæri til að þróa hugmyndir sínar og semja nýtt efni með faglegri leiðsögn,“ segir Tumi.
Afrakstur smiðjunnar fluttur á tónleikum
„Um kvöldið verður efnt til tónleika í Deiglunni í Gilinu þar sem ný lög sem verða til yfir daginn verða flutt, og sungin með aðstoð áhorfenda. Þar gefst gestum kostur á að kynnast afrakstri lagasmiðjanna og taka þátt í lifandi og skapandi tónlistarviðburði, og þátttakendur smiðjanna fá að upplifa splunkunýju lögin sín vakna til lífsins,“ segir Tumi.
Verkefnið er unnið í samstarfi við Tónlistarskólann á Akureyri og Gilfélagið.
Þátttaka er öllum að kostnaðarlausu en það þarf að skrá sig. Hér er það gert.
Hver þátttakandi fær einn ókeypis boðsmiða fyrir vin á tónleikana um kvöldið, en umfram það er hægt að kaupa miða á tónleikana.