Fréttir
Ók á 200 km hraða þegar banaslys varð
12.06.2025 kl. 11:30

Ofsaakstur var meginorsök banaslyss sem varð á Eyjafjarðarbraut eystri skammt norðan við Laugaland í apríl á síðasta ári. Þetta kemur fram í skýrslu Rannsóknarnefndar samgönguslysa. Í slysinu létust ökumaðurinn, 29 ára karl, og 23 ára kona, sem var farþegi.
„Samkvæmt gögnum úr árekstrareftirlitskerfi bifreiðarinnar var henni ekið á 198 – 201 km/klst um fimm sekúndum fyrir slysið og loftpúðar sprungu út við áreksturinn á 167 km/klst,“ segir í samtakt úr skýrslunni sem birt hefur verið á netinu. Hámarkshraði á þessum stað er 90 km.