Fara í efni
Íþróttir

Öflugt Þórslið lagði Fylki að velli

Ibrahima Balde, til hægri, fagnar glæsilegu marki sínu í kvöld. Hann kom Þór þá í 2:1 fljótlega eftir að Fylkismenn jöfnuðu. Með honum á myndinni er Clement Bayiha sem gerði fyrsta mark Þórs. Mynd: Ármann Hinrik

Öflugt Þórslið sigraði Fylki 4:1 í Boganum í kvöld í Lengjudeildinni, næst efstu deild Íslandsmótsins í knattspyrnu. Njarðvík og ÍR eru efst í deildinni með 11 stig að fimm umferðum loknum en Þór og Þróttur eru með 10 stig.

Sigur Þórs var sanngjarn. Liðið var heilsteypt, lék vel á löngum köflum, hvort sem leikmenn tóku á móti gestunum framarlega á vellinum eða vörðust aftarlega og beittu skyndisóknum.

Útherjinn Clement Bayiha kom Þór yfir eftir stundarfjórðung með fyrsta marki sínu í deildinni, gestirnir jöfnuðu snemma í seinni hálfleik þegar Tumi Fannar Gunnarsson skoraði en Ibrahima Balde svaraði um hæl; kom Þór yfir á ný þegar tæp ein og hálf mínúta var frá því Fylkir skoraði.

Þórsarar skoruðu svo í tvígang á síðustu andartökum leiksins. Fyrst Sverrir Páll Ingason og síðan Sigfús Fannar Gunnarsson, sem er því áfram markahæstur í deildinni – Sigfús hefur gert sjö mörk í fimm leikjum en Grindvíkingurinn Breki Þór Hermannsson hefur gert sex mörk.

Liðsheild Þórs var öflug sem fyrr segir en nefna verður Orra Sigurjónsson sérstaklega; hann var frábær í kvöld.

Nánar í fyrramálið

Leikskýrslan

Staðan í deildinni