Fara í efni
Fréttir

„Nýtt tímabil að hefjast í uppbyggingu norðan Glerár“

Söguleg stund! Frá vinstri: Þórhallur Jónsson, formaður skipulagsráðs, Halla Björk Reynisdóttir, forseti bæjarstjórnar og Guðmundur Baldvin Guðmundsson, formaður bæjarráðs. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson

Fyrsta skóflustunga að Holtahverfi austan Krossanesbrautar á Akureyri var tekin í dag við væntanlegt Þursaholt, nyrst í hverfinu þar sem framkvæmdir hefjast. Gert er ráð fyrir alls um 300 íbúðum á svæðinu en framkvæmdir við gatnagerð og lagnavinnu hefjast nú í fyrri áfanga hverfisins. Reikna má með að framkvæmdir hefjist við a.m.k. 40 íbúðir strax á þessu ári.

„Með þessari skóflustungu hér í dag er hafið nýtt tímabil í uppbyggingu Akureyrar norðan Glerár – í Þorpinu,“ sagði Þórhallur Jónsson, formaður skipulagsráðs, og minnti á að einnig væri unnið að nýju deiliskipulagi fyrir Móahverfi vestan Borgarbrautar, efst í Glerárhverfi – Þorpinu, eins og Akureyringar kalla gjarnan bæjarhlutann norðan árinnar. „Við væntum þess að það klárist á næstu mánuðum og þar gerum við ráð fyrir allt að 1.000 íbúðum fyrir allt að 2.500 íbúa,“ sagði Þórhallur áður en hann mundaði skóflu ásamt forseta bæjarstjórnar, Höllu Björk Reynisdóttur, og Guðmundi Baldvin Guðmundssyni, formanni bæjarráðs.

Frábært útsýni til allra átta

Í þessum nýja hluta Holtahverfis verður, skv. deiluskipulagi sem samþykkt var í bæjarstjórn snemma síðasta árs, blönduð íbúðabyggð fjölbýlishúsa, raðhúsa, parhúsa og einbýlishúsa. „Skipulagið hefur einnig í för með sér bætt umferðarskipulag, nýja stíga og útivistarsvæði,“ að því er segir í tilkynningu á vef Akureyrarbæjar.

„Helstu einkenni svæðisins eru miklar klappir sem byggt verður í kringum, frábært útsýni til allra átta, nálægð við strandlengju og lifandi smábátahöfn. Við mótun skipulags hefur meðal annars verið lögð áhersla á sjálfbærni, lýðheilsu og umhverfisvænar samgöngur. Vistgötur verða óvenjumargar og er horft til þess að stuðla að góðu umhverfi fyrir hjólandi og gangandi, til dæmis með því að koma fyrir gróðurbeðum og trjám í götunum.“

Nesbræður vinna verkið

Akureyrarbær, Norðurorka, Míla og Tengi buðu í október sl. út það verk sem hafist verður handa við og var samið við lægstbjóðanda, Nesbræður ehf., fyrir um 315 milljónir króna. Í verkinu felast einkum jarðvegsskipti vegna gatna, gangstétta og stíga, lagnavinna, gerð útivistarstíga og jarðvegsskipti fyrir leiksvæði og áningarstaði. Verkinu er skipt í tvo hluta og er áætlað að þeim fyrri verði lokið í byrjun maí og hinum síðari um miðjan október á þessu ári.