Nýtt æfingatæki við Sundlaug Akureyrar

Í síðustu viku bættist nýtt æfingatæki við laugarsvæðið í Sundlaug Akureyrar. Um er að ræða hreyfitæki sem hentar bæði til styrktar- og teygjuæfinga og er það hugsað sem viðbót við heilsueflandi umhverfi sundlaugarinnar.
Að sögn Gísla Rúnars Gylfasonar, forstöðumanns sundlauga Akureyrar, er æfingatækið hluti af verkefni um heilsueflandi samfélag sem byrjaði í fyrra. Tækið er hugsað fyrir sundlaugargesti, að þeir geti nýtt sér það á sundfötunum samhliða heimsókn í laugina. Segir hann að gestir hafi strax tekið vel í tækið sem staðsett er hjá pottunum vestast á sundlaugarsvæðinu. „Tækið er mikið notað og hentar öllum. Eldri sundlaugargestir hafa t.d. nýtt tækið til léttari æfinga og í teyjur, þetta er gott í gömlu Müllers-æfingarnar,“ segir Gísli Rúnar.
Æfingatækið er frá fyrirtækinu Lappset og býður upp á marga möguleika til æfinga.
Gervigrasinu skipt út
Samhliða því að nýja tækið var sett upp á sundlaugarlóðinni er verið að vinna að endurbótum á undirlagi á svæðinu. Verið er að taka hluta af slitnu gervigrasi og setja í stað þess gúmmímottur sem þola betur bleytu og álag. „Við sáum að það var að grafast undan gervigrasinu hjá vatnsstútunum þannig að það var ákveðið að setja betra undirlag á svæðið,“ segir Gísli Rúnar.
Gervgrasið er að víkja fyrir öðru undirlagi.