Fara í efni
Fréttir

Nýr stjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs

Böðvar Þórir Kristjánsson hefur verið ráðinn sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs Akureyrarbæjar. Greint er frá þessu á vef sveitarfélagsins í dag. Böðvar tekur við af Guðríði Erlu Friðriksdóttur sem stýrt hefur sviðinu um árabil en hún lét nýlega af störfum.

Böðvar er fæddur 2. mars 1971. Hann er menntaður byggingarfræðingur frá VIA University College og er auk þess húsasmíðameistari og með réttindi sem byggingarstjóri.

„Böðvar hefur víðtæka starfsreynslu af stjórnun, rekstri og þeim málaflokkum sem heyra undir sviðið,“ segir á vef Akureyrarbæjar. „Undanfarin tvö ár hefur hann starfað sem verkefnastjóri hjá Húsheild Hyrnu, en áður var hann eigandi og framkvæmdastjóri byggingafyrirtækisins Lækjarsels í rúman áratug. Þar áður starfaði hann m.a. sem verkefnastjóri hjá SS-byggir ehf. og við byggingareftirlit hjá Opus verkfræðistofu.“