Ný verslun Sindra opnuð á Akureyri

Fagkaup hafa opnað nýja Sindra verslun í nýju stórhúsi að Óseyri 1 á Akureyri. Nýja verslunin er yfir 1.500 fermetrar að stærð „og þar má finna gríðarlegt úrval vara en verslunin sameinar undir einu þaki vöruframboð tveggja leiðandi vörumerkja í byggingariðnaði og iðnþjónustu: Sindra og Áltaks. Með þessari ráðstöfun styttist vegalengd viðskiptavina að öllum helstu verkfærum, efni og búnaði sem þeir þurfa til að keyra verkefnin áfram, frá grunni upp í þak,“ segir í tilkynningu frá fyrirtækinu.
„Í húsnæðinu er jafnframt komin ný, hágæða framleiðslulína með sérhannaðri völsunarvél sem gerir það kleift að framleiða bæði bárujárn og álklæðningar á staðnum. Þetta þýðir styttri afgreiðslutíma og aukið öryggi í framboði efna og möguleikum á sérsniðnum lausnum fyrir viðskiptavini sem vilja hámarka endingu og fagurfræði í þak- og veggklæðningum.“
Haraldur Líndal, forstjóri Fagkaupa, ávarpar gesti þegar verslun Sindra var opnuð.
Til að fagna tímamótunum bauð Fagkaup viðskiptavinum, samstarfsaðilum og fleirum á svæðinu að taka þátt í formlegri opnun föstudaginn 13. júní. Þar gafst gestum kostur á að skoða verslunina, kynna sér framleiðslulínuna og njóta léttra veitinga.
„Þessi opnun markar stórt skref í því að efla nærveru okkar á Norðurlandi,“ segir Haraldur Líndal, forstjóri Fagkaupa. „Við erum afskaplega þakklát fyrir þær móttökur sem við höfum fengið á Norðurlandi,“ segir Haraldur, „og ánægð að geta bætt okkar þjónustu hér enn frekar. Við trúum því að þessi viðbót muni hjálpa til við að auka afköst og efla uppbyggingu á svæðinu.“
Opnun Sindra verslunarinnar á Akureyri er liður í markvissri stækkunarstefnu Fagkaupa, segir í tilkynningunni, „sem miðar að því að bæta aðgengi iðnaðarmanna, verktaka og áhugafólks að traustu vöruúrvali, sérhæfðri ráðgjöf og innlendri framleiðslu.“
Þess má geta að handan götunnar, í nýlegu húsi að Óseyri 1A, eru þrjú fyrirtæki í eigu Fagkaupa; Johan Rönning, Ísleifur og Vatn og veitur.
Friðbjörn Benediktsson, svæðisstjóri Fagkaupa á Norðurlandi, og Haraldur Líndal, forstjóri fyrirtækisins.