Ný ljóðabók Ásgeirs heitins – Næsta stríð
Út er komin ljóðabókin Næsta stríð eftir Ásgeir H. Ingólfsson. Ásgeir var langt kominn með að ganga frá handriti að ljóðabókinni þegar hann lést í janúar 2025, aðeins 48 ára að aldri, og það var eindregin ósk hans að bókin yrði gefin út eftir hans dag. Næsta stríð er þriðja ljóðabók Ásgeirs, en áður komu út Grimm ævintýri (2010) og Framtíðin (2015).
„Næsta stríð hefur að geyma fjölbreytt ljóð eftir Ásgeir, sem eru flest samin á síðasta áratug ævi hans (2015-2025). Á þessum tíma dvaldi Ásgeir að stórum hluta í Prag í Tékklandi og ljóðin litast mörg af því. COVID tímabílið - eða Kófið (eins og Ásgeir kallar það) - fær líka sinn sess. Pokadýr, skúringakonur, kettir og körfuboltavellir eru meðal þess sem ber á góma. Átök og húmor í bland,“ segir í tilkynningu í tilefni útgáfunnar.
Menning þvert á landamæri
Ásgeir H. Ingólfsson var bókmenntafræðingur, skáld og menningarblaðamaður. Hann hélt lengi úti vefnum Menningarsmygl (smygl.is) þar sem hann fjallaði um menningu þvert á landamæri. „Skrif hans um kvikmyndir voru sérstaklega áberandi og fáir sem höfðu jafn djúpa þekkingu á evrópskum kvikmyndum og hann,“ segir í tilkynningunni.
Ásgeir lést eftir stutt veikindi. Í aðdraganda andlátsins skipulagði hann viðburð, svokallaða Lífskviðu, þar sem hann stefndi saman vinum til að fagna saman lífinu. Við undirbúning Lífskviðunnar kom Ásgeir fram í viðtölum, þar sem hann ræddi meðal annars um skrifin og sköpunina, sem hann taldi sína verðmætustu arfleifð. Hann syrgði að hafa ekki getað birt meira af því efni sem hann átti og sagði frá því að hann hefði leitað til vina um að vera ljósfeður og ljósmæður verka sem væru nógu langt komin til að hægt væri að gefa þau út.
Næsta stríð svarar þessu kalli Ásgeirs. Ritstjórar bókarinnar eru þeir Haukur Már Helgason og Hermann Stefánsson en þau Auður H. Ingólfsdóttir og Jón Bjarki Magnússon sátu í útgáfunefnd. Bókin er gefin út í nafni Menningarsmygls.
- Langt viðtal Rakelar Hinriksdóttur við Ásgeir birtist á akureyri.net aðeins þremur dögum áður en hann lést. Smellið hér til að lesa viðtalið: