Fara í efni
Fréttir

Norðlensk hönnun og handverk í Hlíðarbæ

Mynd: Kristín S. Bjarnadóttir

Haustsýning Norðlenskrar hönnunar og handverks verður í Hlíðarbæ, skammt norðan Akureyrar, um komandi helgi, 17. og 18. október.

„Sýningin er árleg og hefur fyrir löngu skapað sér sess meðal fjölmargra Norðlendinga og gesta,“ segir í tilkynningu frá Kristínu S. Bjarnadóttur hjá Blúndum og blómum og Vonarbrú og Kjartani Reyni Ólafssyni hjá KRÓ Design fyrir hönd þátttakenda. 

Opið er frá klukkan 11 til 17 bæði á laugardag og sunnudag.

„Vandaðar vörur úr héraði, milliliðalaust úr höndum hönnuða, handverksfólks og sælkerameistara,“ segir í tilkynningunni. 

„Glæsilegur kökubasar góðgerðarfélaga, kertasala o.fl. Ilmandi kaffi og tilvalinn vettvangur til gera sér glaðan dag og góð kaup í leiðinni. Frítt inn og öll hjartanlega velkomin.“

ÞESSI SÝNA
  • Blúndur og blóm
  • KRÓ Design
  • Anita Karin Guttesen
  • BRYN – Design
  • Draumablá
  • Garðurinn minn
  • Helena saumar
  • Jónsdóttir & co
  • Kristjana Agnarsdóttir
  • Liljugaldur
  • Ósk barnaföt
  • Sillukot – Handgerðar íslenskar heimilisvörur
  • Sif hannar
  • Tréskurður
  • Urtasmiðjan
  • Ögn Icelandic bækurnar
  • Öxnhóls Handverk
SÆLKERAMEISTARAR
  • Huldubúð
  • R-rabarbari
  • Reykkofinn við höfnina
KÖKUBASAR
  • Laugardagur: Lionsklúbburinn Ylfa
  • Sunnudagur: Kvenfélag Svalbarðsstrandar

Þess er einnig getið að Vonarbrú verður með kertasölu og fleira til styrktar barnafjölskyldum á Gasa.