Fara í efni
Fréttir

Nokkrar hugmyndir að bílastæðahúsi á Akureyri

Jón Þorvaldur Heiðarsson, sem er í 9. sæti L-listans fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í næsta mánuði, varpar fram nokkrum hugmyndum að bílastæðahúsum neðanjarðar í og við miðbæinn á Akureyri, í áhugaverðri grein sem akureyri.net birti í dag. 

„Miðbær og bíll. Miðborg og bíll. Það hefur valdið miklum heilabrotum hvernig þetta getur farið saman. Í skemmtilegum miðbæ eru falleg hús og græn svæði, veitingahús, kaffihús og umhverfi og andi sem fær mann til að vilja staldra við, setjast niður og njóta augnabliksins,“ segir Jón Þorvaldur í greininni. Bílastæðaflákar búi þó ekki til þannig aðstæður. „En það minnkar líka lífið í miðbænum ef þangað er ekki hægt að komast á bíl. Bíllinn er okkar aðal samgöngutæki, það er erfitt að skauta fram hjá því.“

Í framhaldinu bendir hann á að í miðbæ Akureyrar séu ýmsir möguleikar á bílastæðahúsum. „Nokkrir þeirra eru neðanjarðar þar sem ekki er tekið pláss frá hugsanlegri byggingu.“

Jón Þorvaldur nefnir meðal annars þann möguleika að gera bílastæðahús undir leikskólalóðinni við Brekkuskóla – sjá myndina hér að ofan. „Það gæti væntanlega verið tvær hæðir. Útkeyrslan væri á tveimur stöðum í Gilinu. Sú efri alveg uppvið kartöflugeymsluna. Með þessu væri ekki tekið pláss frá öðrum byggingum, fyrir ofan bílastæðahúsið væri skólalóðin eins og nú.“

  • Grein Jóns Þorvalds:

Bílastæðahús, hvar og hvernig? Nokkrar hugmyndir að bílastæðahúsi á Akureyri