Fara í efni
Mannlíf

Níutíu ár frá fæðingu Ingimars Eydal

Tónlist er vafalítið það fyrsta sem þeim Íslendingum sem muna tímana tvenna kemur til hugar þegar Ingimar heitinn Eydal er nefndur á nafn og ekki að ósekju. Hann var goðsögn í lifanda lífi, stundum kallaður eitt af táknum Akureyrar eins og KEA og kirkjan og Sjallinn, þar sem hljómsveit hans lék um árabil. Ingimar var undrabarn í músík og danshljómsveit hans sú þekktasta hérlendis um árabil. Hann var sannkallaður risi í íslenskum tónlistarheimi; á Akureyri virtist hann árum saman alltaf, allsstaðar og ótrúlegt er í raun, þegar ferill Ingimars er rakinn, að hann náði einungis 56 ára aldri.

Ingimar Eydal og Ásta Sigurðardóttir eiginkona hans gengu í hjónaband árið 1961. Börn þeirra eru fjögur, Guðný Björk, Inga Dagný, Ingimar og Ásdís. Gaman er að geta þess að Ásta samdi fjölmarga dægurlagatexta við lög sem hljómsveit Ingimars flutti, m.a. textann Hoppsa bomm, sem margir þekkja sem Á skíðum skemmti ég mér eftir upphafslínu textans. 

Hjónin Ásta Sigurðardóttir og Ingimar Eydal.

Þann 20. október síðastliðinn voru 90 ár frá fæðingu Ingimars Eydal. Hann fæddist 20. október árið 1936 og lést 10. janúar árið 1993. Fyrir hálfum mánuði voru haldnir tónleikar í minningu Ingimars í Hörpu, menningarmiðstöðinni miklu í höfuðborginni, og leikurinn verður endurtekinn í dag í menningarhúsinu Hofi á Akureyri. Miðar á tónleikana einu sem fyrirhugaðir voru síðdegis í Hofi seldust á augabragði, öðrum var því bætt við í kvöld og ekki leið á löngu þar til uppselt var á þá líka.

  • Höfundur þessarar greinar hefur fjallað um Ingimar Eydal í gegnum árin og birt í Morgunblaðinu, hér á akureyri.net og í blaðinu Tónlistarbærinn Akureyri, sem var hluti samnefndar sýningar á Minjasafninu á Akureyri; aðalsýningar safnsins frá því sumarið 2020 þar til um mitt þetta ár.
  • Hér að neðan er eitt og annað af þessum skrifum rifjað upp í tilefni þess að 90 ár eru liðin frá fæðingu þessa ógleymanlega manns.


Ingimar fæddist á Akureyri, sonur hjónanna Harðar Ólafs Eydal, starfsmanns Mjólkursamlags KEA á Akureyri, og Pálínu Indriðadóttir húsfreyju. Hörður var sonur Ingimars Eydals, kennara og ritstjóra Dags á Akureyri. Ingimar og Finnur bróðir hans, sem var fjórum árum yngri, hófu báðir að leika á hljóðfæri barnungir og fljótlega kom í ljós náðargáfa beggja á því sviði. Báðir reyndu sig fyrst við píanóið, ekki leið á löngu þar til Finnur fann sér annan farveg, en segja má að Ingimar hafi aldrei staðið upp frá hljóðfærinu.

Frábært tóneyra

Þyrí, föðursystir Ingimars og Finns, var lengi píanókennari við Tónlistarskólann á Akureyri. Hún leiðbeindi bræðrunum í byrjun og kenndi Ingimari fyrstu árin, áður en hann hóf nám við skólann sjö eða átta ára.

Það var Þyrí sem uppgötvaði músíkhæfileika Ingimars og hve frábært tóneyra hann hafði, meðal annars vegna þess að eftir um það bil tvö ár áttaði hún sig á því að frændi hennar kunni ekki að lesa nótur! Í lok hvers tíma lék Þyrí það sem Ingimar átti að æfa fyrir næsta tíma, en eftir það hljóp Ingimar rakleiðis heim til sín og rifjaði lagið upp eftir eyranu. Honum fannst óþarfi að læra að lesa nótur, vegna þess hve auðvelt hann átti með að muna lögin. Eftir að Þyrí áttaði sig komst Ingimar hins vegar ekki lengur upp með þetta, en hann hafði orð á því seinna að þetta hafi verið mikil mistök og hann hafi í raun aldrei verið fljótlæs á nótur.

Bræðurnir Ingimar og Finnur Eydal.

Aðalkennari Ingimars í Tónlistarskólanum á Akureyri var Margrét Eiríksdóttir, þekktur píanóleikari á Akureyri og síðar í Reykjavík. Margrét var fyrsti skólastjóri Tónlistarskólans á Akureyri, frá 1946 til 1950. Það var hún sem mælti með Ingimari, þegar Björgvin Guðmundsson, tónskáld, stofnanda og stjórnanda Kantötukórs Akureyrar, vantaði undirleikara vegna forfalla. Ingimar var ekki nema 13 ára en lék bæði á tónleikum og í útvarpsupptöku á kafla úr verkinu Friður á jörðu eftir Björgvin.

Ótrúlegt en satt, sama ár hóf Ingimar að leika fyrir dansi með hljómsveit Karls Adolfssonar á Hótel Norðurlandi, Landinu eins og það var oft kallað. Karl lék á klarinett, Níels Sveinsson á harmoniku og Sigurður V. Jónsson var trommuleikari.

Ingimar Eydal ásamt foreldrum sínum og bræðrum heima í Hlíðargötu 8 ár Akureyri. Frá vinstri: Pálína Indriðadóttir Eydal, Finnur, Ingimar, Gunnar og Hörður Eydal.

Nóg að gera ungur

Ingimar hafði sem sagt nóg að gera í tónlistinni strax á fermingaraldri. Auk þess að leika undir hjá Kantötukórnum fékk Áskell Jónsson unglinginn stundum til þess að leika undir hjá Karlakór Akureyrar og söngmönnum úr kórnum og það gerði Ingimar í nokkur ár. „Hann er auðvitað þekktastur fyrir danstónlist en var alla tíð mikið í undirleik; ofboðslega stór hluti af hans daglega lífi var að spila undir hjá kórum og ýmsum skemmtikröftum,“ segir Inga Eydal, dóttir hans, við greinarhöfund fyrir nokkrum árum. Inga söng lengi með föður sínum.

Fyrstu hljómsveitina stofnaði Ingimar þegar hann var í fyrsta bekk í gagnfræðaskólanum, ásamt Ágústi Sigurlaugssyni harmonikuleikara, Óla Fossberg gítarleikara og Sveini Óla Jónssyni trommuleikara, og lék hún á skólaböllum. Sveitin þótti ekki sérlega góð og þegar hún hafði verið klöppuð niður á nokkrum dansleikjum kvörtuðu drengirnir við Þorstein M. Jónsson skólastjóra og sögðust ekki nenna að spila á böllum og fá ekkert nema vanþakklæti fyrir. Þorsteinn stefndi nemendum á sal, spurði hvort þeir hefðu eitthvað við hljómsveitina að athuga en þá gaf sig enginn fram. Ingimar var reyndar síðar rekinn úr hljómsveitinni.


„Hefði hvort sem er hætt...“

Eftir Ingimari er haft, í bókinni Þeir vörðuðu veginn, þar sem Unnur Karlsdóttir fjallaði um hann: Ég byrjaði að spila á stað sem þá hét Hótel Norðurland – nú Borgarbíó. Ég var þá í fyrsta bekk gagnfræðaskólans, og fór þarna inn út á nótnalestur og veru mína í tónlistarskóla. Þeir voru að fá skemmtikrafta þangað af og til. Sá sem var þar fyrst á píanó las nefnilega ekki nótur og var settur á nikku. Ég kom á píanóið til að lesa fyrir skemmtikraftana. Þá var reyndar nýbúið að reka mig úr gagnfræðaskólahljómsveitinni því ég kunni ekki þau lög sem gengu. En ég þóttist nú mikill karl þegar ég fór að spila á hótelinu enda sagði ég þá: „Sko ég hefði hvort sem er hætt. Ég ætlaði ekkert að vera lengur í bandinu. Ég er að fara að spila útí bæ með atvinnuhljómsveit.“

Eydalsbræður saman í RIFF-kvartettinn sumarið 1956, eftir að Finnur lauk einleikaraprófi í klarínettuleik 16 ára frá Tónlistarskólanum í Reykjavík. Hann er lengst til vinstri, þá Ingimar við píanóið, Reynir Jónasson blæs í tenorsaxófón og Friðjón Snorrason leikur á trommur. RIFF lék í Alþýðuhúsinu þetta sumar.

Þegar Ingimar var örlítið eldri lék hann á Landinu með strákum sem höfðu verið í skólahljómsveit í Menntaskólanum, en í hópnum var líka – langyngstur – Finnur Eydal, sem fékk að spila með eftir miklar fortölur. Hann var þá nýfermdur.

Hótel Norðurland var aðal samkomustaður bæjarins en snemma á sjötta áratugnum keypti Góðtemplarareglan staðinn og breytti í kvikmyndahús, Borgarbíó. Um svipað leyti eignuðust verkalýðsfélögin hús við Gránufélagsgötu, þar sem verið hafði þvottahús en var illa farið eftir bruna. Húsið var byggt upp, nefnt Alþýðuhúsið en í daglegu tali kallað Allinn. Þar spiluðu þeir bræður í félagi við aðra af miklum móð í mörg ár, og var Ingimar til að mynda viðloðandi húsið hvert sumar í um það bil áratug, þar til hann flutti sig yfir í Sjálfstæðishúsið þegar sá kunni skemmtistaður var tekinn í notkun 1963.

Fjölskyldan í Byggðavegi 101 B á Akureyri við lok sjöunda áratugarins. Frá vinstri: Ásta Sigurðardóttir, elsta barnið Guðný Björk, sonurinn Ingimar, Inga Dagný og heimilisfaðirinn Ingimar.

Finnur lauk einleikaraprófi í klarínettuleik nýorðinn 16 ára, vorið 1956, frá Tónlistarskólanum í Reykjavík og um sumarið hófst ferill hans sem atvinnutónlistarmanns. Þá lék hann með Ingimari, Friðjóni Snorrasyni og Reyni Jónassyni á dansleikjum í Alþýðuhúsinu. Fjórmenningarnir kölluðu sig RIFF-kvartettinn.

Um haustið fóru bræðurnir báður suður til frekara náms, Ingimar í tónmenntadeild Kennaraskólans og Finnur í Tónlistarskólann í Reykjavík. Til þess að afla sér tekna léku þeir jafnframt fyrir dansi á fínasta stað Reykjavíkur, Hótel Borg, með hljómsveit Jónasar Dagbjartssonar, en vorið 1957 snéru þeir aftur norður og spiluðu á dansleikjum í Alþýðuhúsinu um sumarið.

Eitt sumar á Akureyri ...

Helena Eyjólfsdóttir var lengi ein helsta dægurlagasöngkona landsins. Hún kynntist ung Finni Eydal, þau urðu lífsförunautar og samstarfsmenn í tónlistinni, lengst af á Akureyri. Helena var barnastjarna, fædd og uppalin í Reykjavík. Hún söng fyrst opinberlega níu ára gömul, við undirleik Guðrúnar Pálsdóttur, söngkennara í Melaskólanum, en á þeim tíma var Helena nýbyrjuð í söngtímum hjá henni. Eftir að faðir Helenu lést var hún í vist á Akureyri, 11 ára gömul sumarið 1953, hjá Ágústi föðurbróður sínum og Helgu Vigfúsdóttir, foreldrum Kennedy-bræðranna, sem svo eru kallaðir. Hún passaði yngsta soninn, Eyjólf, sem var tveggja ára, og var alsæl með dvölina. Þegar hún sneri suður um haustið hét hún sjálfri sér því að fara einhvern tíma norður aftur. Hún stóð sannarlega við það og hefur búið á Akureyri í áratugi.

Helena Eyjólfsdóttir syngur 15 ára á skemmtun í Skátaheimilinu í Reykjavík. Það er Ólafur Kristjánsson sem leikur á harmonikuna. Til hægri, Helena og Finnur Eydal fljótlega eftir að þau kynntust.

Þegar Helena kom fram með Hljómsveit Svavars Gests á árshátíð Málarameistarafélags Reykjavíkur í Sjálfstæðishúsinu við Austurvöll haustið 1957, var í hljómsveitinni ungur klarínett- og baritónsaxafónleikari frá Akureyri, Finnur Eydal, sem Helena mundi eftir að hafa séð í Allanum á Akureyri sumarið áður. Þótt ungar væru að árum leyfði afi bestu vinkonu Helenu, sem rak Allann á þessum tíma, stelpunum stundum að fara inn bakdyramegin, í eldhúsið, „til þess að gægjast sem snöggvast fram í sal,“ segir í ævisögu Helenu. Afinn var Steingrímur Eggertsson en vinkonan Edda Þorsteinsdóttir.

Veturinn 1958 til 1959 léku Helena og Finnur bæði í danshljómsveitum í miðbæ Reykjavíkur; hann með Svavari Gests á Hótel Borg en hún með hljómsveit Gunnars Ormslev í Framsóknarhúsinu. Finnur og Helena bjuggu meira og minna í Reykjavík næstu árin en fluttu norður snemma árs 1966 þegar Finni bauðst að koma í hljómsveit bróður síns og ári síðar var Helena orðinn hluti af hópnum.


Myndi setja allt á annan endann í Reykjavík

Sumarið 1960 lék Atlantic í Allanum öll kvöld vikunnar, eins og tíðkaðist árin á undan, en þá hafði Örn Ármannsson leist Edwin Kaaber af og Gunnar Reynir Sveinsson víbrafónleikari bæst í hópinn og því um kvintett að ræða. Hljómsveitin þótti sérlega góð og Svavar Gests, tónlistarmaður og útgefandi hældi henni á hvert reipi í grein sem hann skrifaði í dagblaðið Tímann.

Grein Svavars hét Allir leika á allt, og þar benti Svavar á að mannskapurinn skiptist á að leika á flest hljóðfærin. Finnur væri jafnvígur á klarinett, baritón saxófón, trommur og kontrabassa, Ingimar léki á píanó og harmoniku, Örn spilaði á gítar og bassa og Gunnar Reynir á víbrafón og gripi í trommurnar. Þá sagði hann söngkonuna Helenu leika á hristu og ætti líka til að spila á trommur á meðan Sveinn Óli gripi í kontrabassann. Allir lékju sem sagt á (nánast) allt, „og forstjóri Alþýðuhússins hefur leikið á forstjóra allra annarra samkomuhúsa, því hann einn hefur Atlantic-kvintettinn samningsbundinn, sem er orsökin fyrir því að Alþýðuhúsið á Akureyri er fullt sjö kvöld vikunnar.“

Svavar sagði einnig í greininni: „Ég hafði ekki hlustað nema á fáein lög þegar ég gerði mér grein fyrir, að þarna var á ferðinni hljómsveit, sem líklega mundi setja allt á annan endann ef hún léki í Reykjavík.“

Atlantic kvartettinn og söngvararnir tveir í Alþýðhúsinu sumarið 1959, ári eftir stofnun hljómsveitarinnar. Frá vinstri: Ingimar Eydal, Finnur Eydal, Edwin Kaaber, Sveinn Óli Jónsson, Óðinn Valdimarsson og Helena Eyjólfsdóttir.

Næsta vetur var Ingimar við nám á Laugarvatni en Atlantic lék aftur í Allanum sumarið 1961. Óðinn Valdimarsson, sem var ekki með sumarið áður, var kominn aftur í hópinn eftir að hafa verið í KK-sextett í Reykjavík og söng ásamt Helenu en aðrir voru Ingimar, Finnur, Alfreð trommari, Gunnar Reynir víbrafónleikari og gítarleikarinn Garðar. Þetta var síðasta starfsár Atlantic.

Það var á vordögum 1962 sem Hljómsveit Ingimars Eydal var stofnuð. Óðinn Valdimarsson starfaði áfram með Ingimari og aðrir í sveitinni voru Kristinn Sigurpáll Kristinsson bassa- klarinett- og harmonikuleikari, Grétar Ingvarsson gítarleikari og trommarinn Hjalti Hjaltason. Hljómsveitin lék í Alþýðuhúsinu þetta sumar og veturinn á eftir, en þegar Sjálfstæðishúsið var opnað 3. júlí 1963 höfðu Ingimar og hans menn flutt sig vestur fyrir Glerárgötuna og komið sér fyrir á sviði nýja hússins. Í sömu viku og Sjallinn var opnaðu fæddist önnur dóttir Ingimars og Ástu, Inga Dagný, sem seinna söng mikið með föður sínum, meðal annars í Sjallanum.

Hljómsveit Ingimars Eydal eins og hún var skipuð þegar Sjálfstæðishúsið var opnað 1963. Frá vinstri: Kristinn Sigurpáll Kristinsson sem lék á bassa, klarinettu og harmoniku, trommarinn Hjalti Hjaltason, Óðinn Valdimarsson söngvari, Ingimar situr við píanóið og lengst til hægri er Grétar Ingvarsson gítarleikari.

Sjallastemningin rómuð

Stemningin á dansleikjum í Sjallanum var rómuð um árabil. Ingimar var ábyrgur fyrir öllum tónlistaflutningi í húsinu, svo hljómsveit hans lék ekki bara á hefðbundnum dansleikjum; barnaskemmtanir, árshátíðir og alls kyns önnur mannamót fóru fram í húsinu og hlutverk Ingimars var að sjá til þess að alltaf væri rétt tónlist í boði, eins og Jónatan Garðarsson tekur til orði í grein í bæklingi sem fylgdi hljómdisknum Allt fyrir alla, safnplötu sem kom út 2011, þegar Ingimar hefði orðið 75 ára. Þar er að finna úrval laga frá ferli Ingimars. „Sögur af leiftrandi skemmtilegum Sjallaböllum komust á kreik og það var nánast skyldumæting í Sjálfstæðishúsið ef ferðamenn áttu leið um Akureyri.“ Ingimar sagði einmitt sjálfur mikilvægt að geta gert öllum til hæfis og því mikilvægt að „lesa“ salinn og hafa alls kyns fjölbreytta tónlist á boðstólum.

Í Sjallanum. Ingimar Eydal, Þorvaldur Halldórsson, Finnur Eydal, Friðrik Bjarnason, Hjalti Hjaltason og Helena Eydal.

Þegar Óðinn Valdimarsson hætti í hljómsveitinni haustið 1963 bættust Andrés Ingólfsson og Þorvaldur Halldórsson í hópinn. Andrés var saxófónleikari auk þess að leika á ásláttarhljóðfæri og söng bakraddir en Þorvaldur söngvari og rytmagítarleikari. Hann hafði spilað með Hauki Heiðari á Hótel KEA en flutti sig til Ingimars. Ári síðar hætti Kristinn Sigurpáll og Vilhjálmur H. Vilhjálmsson tók hans stöðu. Þeir smellpössuðu saman, tenórinn Villi Vill og Þorvaldur með sína djúpu bassaröddu.

Þegar Vilhálmur og Andrés létu af störfum hjá Ingimari tók Þorvaldur við bassanum, Páll Helgason kom inn sem gítarleikari og Erla Stefánsdóttir, sem sungið hafði með Póló, kom einnig til liðs við Ingimar.

Skömmu áður en Vilhjálmar og Andrés hurfu á braut hafði upptökum lokið á átta lögum á tvær plötur; sú fyrri kom út um miðjan október 1965 og þar var til dæmis lagið Á sjó sem Þorvaldur söng og varð gríðarlega vinsælt; eitt vinsælasta sjómannalag allra tíma hér á landi, einnig Litla sæta ljúfan góða sem Vilhjálmur söng og Bara að hann hangi þurr, sem urðu einnig mjög vinsæl.

Umslag fyrstu plötu Hljómsveitar Ingimars Eydal.

Á seinni plötunni voru m.a. Hún er svo sæt og Vor í Vaglaskógi.

Finnur og Helena flutti norður snemma árs 1966 eftir nokkura ára dvöl í Reykjavík og Finnur hóf störf með hljómsveit bróður síns. Helena hóf ekki að syngja með sveitinni fyrr en nokkru síðar.

Þorvaldur Halldórsson segir í ævisögu Helenu Eyjólfsdóttur, Gullin ský: „Við höfðum áður verið með blásara í hljómsveitinni en klarínettuleik Finns Eydal fylgdi alveg nýr og ferskur tónn. Finnur kom með Benny Goodman-sveifluna sem hafði ekki verið áður og vöktu þessu hröðu lög gríðarlega lukku. Almennt má segja að með Finni og síðan Helenu hafi komið ákveðin djassveifla sem fylgdi hljómsveitinni næstu árin. Finnur átti stórt og merkilegt safn djasshljómplatna og þau hjónin þekktu því vel til þeirrar tónlistar. Okkar aðalsmerki hafði verið raddaður söngur og það varð því varð engin breyting þegar Helena kom i hljómsveitina í stað Erlu Stefánsdóttur. Við Helena náðum strax að stilla saman strengi okkar í söngnum og héldum áfram á þeirri braut sem við Vilhjálmur Vilhjálmsson höfðum markað, að syngja saman allar tegundir tónlistar; nýjustu lögin, latíntónlist, kantrímúsík og fleira.“

Á skíðum skemmti ég mér! Lagið Hoppsa bomm, sem hefst á setningunni Á skíðum skemmti ég mér, er eitt það þekkasta með Hljómsveit Ingimars Eydal. Það var Ásta Sigurðardóttir eiginkona Ingimars sem samdi textann. Hjalti Hjaltason, Friðrik Bjarnason, Helena Eydal, Finnur Eydal, Þorvaldur Halldórsson og Ingimar Eydal.

Árið 1970 var Ingimar einn eftir í upprunalegu hljómsveitinni, þegar Hjalti Hjaltason trommari hætti og Árni Friðriksson kom í hans stað. Um svipað leyti hvarf Þorvaldur Halldórsson á braut og Bjarki Tryggvason bættist í hópinn – sá sem þekktastur fyrir að syngja Í sól og sumaryl. Grímur Sigurðsson gítar- og trompetleikari bættist í hópinn um þetta leyti en Bjarki tók að mestu við bassaleiknum af Þorvaldi.

Ingimar hafði nóg að gera að vanda; hann starfaði alla tíð sem barnakennari, samhliða spilamennskunni, og þennan vetur var einnig tónlistarstjóri Leikfélags Akureyrar, sem setti upp Gullna hliðið og Þið munið hann Jörund. Þá var hann undirleikari hjá 24 MA félögum, kór sem Sigurður Demetz Fransson stjórnaði.

Finnur Eydal, Helena Eyjólfsdóttir, Ingimar Eydal, Árni Friðriksson og Bjarki Tryggvason. 

Mannabreytingar urðu reglulega í hljómsveit Ingimars eins og verða vill. Skemmtilegt dæmi er að 1974 komu inn í hópinn Sævar Benediktsson bassaleikari og Þorleifur Jóhannsson trommari, tveir þeirra sem slógu í gegn með drengjabandinu Bravó áratug fyrr.

60-70 lög á efnisskránni

„Á þeim níu árum sem ég söng með Hljómvseit Ingimars Eydal var stemningin líklega hvað mest í Sjallanum á árunum 1970 til 1972. Þá var hljómsveitin geysilega þétt og góð,“ segir Helena Eyjólfsdóttir í ævisögu sinni. „Tónlistarvalið var orðið breiðara en áður, þegar það var meira undir áhrifum Bítlanna. Nú voru komin til skjalanna lög með Carpenters, Dusty Springfield og latíntónlist þar sem ég hristi stokkinn! Á hverju kvöldi voru sextíu til sjötíu lög á efnisskránni og við lögðum okkur fram um að endurnýja hana reglulega.“

Hljómsveit Ingimars Eydal á Ráðhústorgi 1968 þegar Ríkissjónvarpið gerði þátt um hljómsveitina.

Radio Luxembourg var dýrmæt stöð

Hljómsveit Ingimars var þekkt fyrir að bjóða á dansleikjum upp á nýjustu og vinsælustu erlendu lögin hverju sinni, mun fyrr en hljómsveitir á Reykjavíkursvæðinu. Hljómsveitarstjórinn lagði mikla áherslu á að „við hefðum nýtt efni um hverja einustu helgi og yfirleitt tókst okkur það,“ sagði Helena í áðurnefndri bók.

Friðrik Bjarnason, gítarleikari hljómsveitarinnar síðari hluti sjöunda áratugarins, átti forláta Sony TC-500 segulbandstæki og Radionette útvarpstæki og kom sér upp öflugu loftneti, til þess að ná útsendingum Radio Luxembourg. Stöðin sendi á sunnudagskvöldum út þátt með tuttugu vinsælustu lögum vikunnar og hann tók Friðrik upp. „Við vorum reyndar að spila í Sjallanum á sunnudagskvöldum en þar sem ég átti heim í næsta nágrenni skaust ég heim og setti á upptöku og hélt síðan áfram að spila meðan upptökutækið meðtók vinsælustu lögin þá vikuna. Á næstu æfingu hlustaði hljómsveitin síðan á upptökuna og ákvað hvaða nýju lög skyldi taka inn á efnisskrána,“ sagði Friðrik fyrir nokkrum árum.

Hjalti Hjaltason, Finnur Eydal, Ingimar Eydal, Helena Eyjólfsdóttir, Þorvaldur Halldórsson og Friðrik Bjarnason.

Friðrik segir Útvarp Reykjavík yfirleitt hafa tekið sömu lög til spilunar mörgum mánuðum eftir að hljómsveit Ingimars hætti að spila þau á böllum! „Lagalistinn hjá okkur var þannig í takti við það sem þekktist í London, háborg dægurtónlistarinnar, því okkur var það mikið metnaðarmál að spila alltaf allra nýjustu lögin og þetta vakti mikla athygli á hljómsveitinni. Við heyrðum af fólki sem hafði verið úti í Englandi og keypt þar plötur og hlustað á nýjustu tónlistina í útvarpi. Það kom síðan til Reykjavíkur og heyrði þar gamla tónlist á böllum en í Sjálfstæðishúsinu á Akureyri fékk það hins vegar nýjustu lögin frá Bretlandi beint í æð. Þetta þótti stórmerkilegt.“

Inga Dagný Eydal, sem lengi söng með föður sínum, segir hann hafa leitt hugann að því að taka sér frí frá því að leika fyrir dansi, að minnsta kosti um stundarsakir, um miðjan áttunda áratuginn; þrátt fyrir að hann hefði gífurlega gaman af starfinu var mikil vinna farinn að taka sinn toll. Hann hélt þó áfram en í febrúar árið 1976 kipptu örlögin hressilega í taumana, þegar Ingimar, Ásta eiginkona hans og Ingimar sonur þeirra lentu í bílslysi, þar sem Ingimar slasaðist mjög illa. Hljómsveitin var samningsbundin Sjallanum til vors og hélt því sinu striki án Ingimars en Gunnar Ringsted bættist í hópinn. „Við lékum áfram í röska þrjá mánuði án Ingimars en fundum fljótt að það vantaði skipstjórann á skútuna og því var það sameiginleg ákvörðun okkar að láta staðar numið. Það kom berlega í ljós hversu mikilvægur Ingimar var fyrir okkur öll,“ segir Helena Eydal í ævisögu sinni.

Þessi jakkaföt vöktu gríðarlega athygli og voru kölluð skæruliðafötin! Hljómsveitarstjórinn var ekki ýkja hrifinn en lét sig hafa það að klæðast þeim! Ingimar Eydal, Helena Eyjólfsdóttir, Finnur Eydal, Grímur Sigurðsson, Bjarki Tryggvason og Árni Friðriksson.

Ingimar dró sig í hlé í töluverðan tíma eftir slysið en kom reyndar fram einu sinni í desember þetta sama ár; lék á hljómleikum til styrktar þroskaheftum í Borgarbíói og var vel fagnað. Hann jafnaði sig hægt og bítandi, þar kom að hann fór að leika fyrir matargesti á Hótel KEA, auk þess sem hann hóaði saman nokkrum gömlum félögum til að spila inn á hljómplötu Óðins Valdimarssonar, Blátt oní blátt, sem kom út 1978. Sá hópur kom aldrei fram opinberlega en tónlistin togaði og Ingimar setti saman djasskvartett með Finni bróður sínum, trommaranum Árna Friðrikssyni og bassaleikaranum Sævari Benediktssyni. „Kvartettinn hélt öðru hvoru tónleika á Norðurlandi og í Reykjavík og spilaði einu sinni í Sjónvarpinu,“ segir Jónatan Garðarsson í bæklingi sem áður var nefndur.

Astró tríóið sem lék á Hótel KEA. Ingimar Eydal, Grétar Ingvarsson og Rafn Sveinsson.

Ingimar snéri svo aftur í dansleikjabransann haustið 1979, þegar hann þekktist boð Rafns Sveinssonar um að leika í Astró tríóinu á Hótel KEA, með honum og Grétari Ingvarssyni, einum þeirra sem var upphaflega í hljómsveit Ingimars 1962. Inga, dóttir Ingimars, hóf að syngja með tríóinu aðeins 17 ára gömul í mars 1981 og hófst þá langur ferill, því Inga átti eftir að starfa með föður sínum og hélt síðan úti eigin hljómsveit eftir að Ingimar lést. Sumarið 1982 leysti Rafn tríóið upp og flutti úr landi.

Hljómsveit Ingimars Eydal í Sjallanum við upphaf níunda áratugarins. Snorri Guðvarðsson, Brynleifur Hallsson, Grímur Sigurðsson, Inga Eydal, Ingimar Eydal og Þorleifur Jóhannsson.

Sumarið 1981 sá Ingimar um tónlistarstjórn Sumarrevíunnar eftir Þorvald Þorsteinsson og Hermann Arason í Sjallanum. Hann var sem sagt kominn með annan fótinn á ný í Húsið, eins og Ingimar kallaði Sjálfstæðishúsið alltaf. En reiðarslag dundi yfir 21. desember það ár: Sjallinn stórskemmdist í eldsvoða. Staðurinn var opnaður á ný sumarið 1982 eftir viðgerð, sú uppbygging reyndist mjög dýr og reksturinn var erfiður en til að hleypa lífi í glæðurnar var Ingimar fenginn til að endurreisa hljómsveit sína og 10. desember 1982 steig Hljómsveit Ingimars Eydal á svið í Sjallanum á nýjan leik; söngkona var Inga Eydal, Brynleifur Hallsson lék á gítar, Grímur Sigurðsson á bassa og Þorleifur Jóhannsson á trommur. „Eftir að ég byrjaði að syngja með pabba hafði hann góða afsökun fyrir því að halda áfram!“ segir Inga. „Hann hafði áður talað um að hætta, en hafði svo ofboðslega gaman af þessu að hann hreinlega gat það ekki.“

Veturinn 1985 til 1986 voru Ingimar og Ásta í Reykjavík þar sem hann nam kórstjórn, tónfræði og kennslufræði við Tónlistarskólann í Reykjavík. Aðrir í hljómsveitinni léku áfram í Sjallanum og Kristján Guðmundsson, einn Bravó piltanna, tók sæti Ingimars við hljómborðið. Ekki þótti hópnum við hæfi að halda sami nafni svo sveitin var kölluð Áning, sem stóð fyrir Án Ingimars!

Kennarinn Ingimar Eydal. Hann starfaði áratugum saman við kennslu í Gagnfræðaskóla Akureyrar samhliða tónlistinni.

Veturinn í Reykjavík lék Ingimar tónlist fyrir matargestum á samkomustöðum Ólafs Laufdal og eftir að Ólafur keypti Sjallann árið 1986 kom ekki annað til greina en ráða Ingimar og hljómsveit hans til að halda uppi fjörinu og eftir að gerðar höfðu verið töluverðar breytingar á húsnæðinu var opnað á ný 27. nóvember. Þar léku Ingimar og hans fólk í nokkur ár, auk þess að koma fram víða annars staðar hér heima og erlendis, einkum á samkomum Íslendingafélaga.

Stundarfyrirbrigði ...

Ingimar Eydal sagði stundum frá því að hann ætlaði sér aldrei að festast í spilamennskunni, heldur væri hljómsveitarrekstur stundarfyrirbrigði sem gengi yfir. „Hann var kominn á skoðun móður sinnar að fullorðnir menn ættu ekkert að vera að þessu. En hann og Ásta konan hans festu kaup á íbúð einmitt um þetta leyti og þess vegna var upplagt að reyna að kljúfa erfiðasta hjallann með spilamennsku,“ skrifar Unnur Karlsdóttir í bókinni Þeir vörðuðu veginn.

Á Spáni: Bjarki Tryggvason, Helena Eyjólfsdóttir, Finnur Eydal, Grímur Sigurðsson og Ingimar Eydal.

„Hann fullvissaði konu sína um að hún skyldi ekki halda það að hún hefði verið giftast einhverjum eilífðarpoppara. Hann ætlaði að spila einn vetur og kannski sumarið eftir það til að taka kúfinn af víxlunum. Síðan ætlaði hann sér að verða einn og aðrir kennarar, fara í sínar skóhlífar klukkan hálffjögur á daginn og leiða lítil börn frá skólanum. Þetta gekk eftir að hluta. Ingimar var alla tíð kennari en hann hætti aldrei að spila. Sem betur fer fyrir íslenska tónlistarsögu og akureyrskan skemmtanaiðnað náði tónlistarástríða Ingimars langt út fyrir mörk hagsýni og sjálfsbjargarhvatar heimilisföðurins. Ingimar greiddi þannig upp íbúða sína á nokkrum og Akureyringar og aðrir landsmenn nutu þess að hafa aðgang að ómetanlegum skemmtikrafti og tónlistarmanni.“

Snorri Guðvarðsson, Inga Dagný Eydal, Brynleifur Hallsson, Þorleifur Jóhannsson, Ingimar Eydal og Grímur Sigurðsson.

Á Spáni fyrir Guðna í Sunnu

Ingimar og hans fólk lék nokkrum sinnum á erlendri grundu en upp úr standa ferðirnar til Spánar, þar sem hljómsveitin lék á næturklúbbnum Jack el Negro, vinsælasta staðnum í Palma á eyjunni Mallorca. Íslenskrar ferðaskrifstofur voru reglulega með ferðakynningar í Sjallanum á áttunda áratugnum og einhverju sinni lék spænski þjóðlagasönghópurinn Los Valldemosa þar á vegum Guðna í Sunnu. Spánverjarnir hrifust af akureyrsku tónlistarmönnunum og buðu þeim að leika á áðurnefndum klúbbi, sem var í þeirra eigu. Hljómsveit Ingimars þáði boðið, fór fyrst haustið 1973 og lék níu kvöld við í röð. Leikurinn var endurtekinn næstu tvö ár, oft var glatt á hjalla en eftirminnilegast var föstudagskvöldið 5. september 1975 þegar staðurinn var lokaður almenningi en haldið einkasamkvæmi. Þar voru á ferðinni Juan Carlos, ríkisarfi sem varð konungur Spánar tveimur mánuðum síðar, Sophia eiginkona hans, Constantine II fyrrveandi Grikklandskóngur og hin danska drottning hans, Anne-Marie og fleiri tignir gestir.

Grímur Sigurðsson, Júlíus Geir Guðmundsson, Ingimar Eydal, Snorri Guðvarðsson, Þorleifur Jóhannsson og Inga Dagný Eydal.

„Við spiluðum okkar prógramm eins og venjulega en málið vandaðist þegar Juan Carlos kom með þá ósk til okkar að spila danskt lag til heiðurs hinni dönsku Grikkjadrottningu. Við vorum hreint ekki rík af dönskum lögum en eftir að hafa kafað vel ofan í lagabunkann fundi við eitt, Det var en skikkelig bondemand. Við töldum bara í lagið og sungum af innlifun og Önnu Maríu fannst greinilega vænt um þetta framlag þessara óhefluðu Íslendinga!“ segir Helena í ævisögu sinni.

Ekki ofsagt að þeir voru undrabörn

Inga Eydal söng mikið með föður sínum eins og áður segir og starfaði náið með honum. „Ég held það sé ekki ofsagt að bæði pabbi og Finnur hafi verið svokölluð undrabörn. Ég var vön að hafa pabba sem undirleikara á jólaböllum, hélt að allir væru eins og hann og fékk hálfgert áfall þegar ég komst að því að svo var ekki,“ sagði Inga fyrir nokkrum árum. „Þegar ég fór að vinna með öðrum, skiptu menn ekki um tóntegund eða spjölluðu við mann og sögðu sögur á meðan þeir spiluðu! Fyrir hann var það algjörlega áreynslulaust, jafn sjálfsagt og að draga andann,“ sagði Inga.


Greindist með krabbamein

„Ég sá hann aldrei æfa sig nema það væri eitthvað sem hann þekkti ekki. Hann lærði upphaflega klassík og Bach var hans uppáhald í lífinu; pabbi sagði Bach upphaf að djassi og allri þeirri tónlist sem skipti máli. Danstónlist var í raun bara aukabúgrein, en þó sannarlega mikið mál í huga pabba, enda hann og aðrir í hljómsveit hans poppstjörnur þess tíma.“

Árið 1991 greindist Ingimar með krabbamein í nýra. Eftir aðgerðir og lyfjameðferð var hann of heilsuveill til að halda áfram kennslu en Ingimar reyndi hvað hann gat að leika áfram með hljómsveitinni. „Eftir að við hættum í Sjallanum fórum við í harkið; flökkuðum um landið, það voru stundum löng ferðalag en pabbi var eins mikið með okkur og hann gat og fyrir hann var það mjög mikilvægt. Hann var af þeirri kynslóð sem fannst ekki í boði að vera þreyttur eða lasinn og fara ekki í vinnuna. Þegar hann lá á spítala kom fyrir að hann ætlaði sér burt til að spila og ég man eftir honum með ælufötu á sviðinu. Hann var í raun miklu lengur með okkur en hann átti að geta og stundum bárum við hann næstum inn á svið,“ sagði Inga Eydal.

Síðasti dansleikur Ingimars með hljómsveitinni var í Miðgarði í Skagafirði á öðrum degi jóla árið 1992. Hann lést hálfum mánði síðar, 10. janúar, aðeins 56 ára.

Kveðja Finns

Í október 1996 var þess minnst með tónleikum í Íþróttahöllinni á Akureyri að sextíu ár voru frá fæðingu Ingimars. Allur ágóði af tónleikunum, sem nefndir voru Kvöldið er okkar, rann í minningarsjóð sem var ætlur til kaupa á konsertflygli fyrir Akureyri. Það var gert og er flygillinn nú í menningarhúsinu Hofi.

Helena og Finnur voru í hópi listamanna sem komu fram þetta kvöld í Íþróttahöllinni. Finnur hafði lengi glímt við veikindi og ekki komið fram lengi en fannst óhjákvæmilegt að leggja málefninu lið, jafnframt því að minnast bróður síns. „Tvö þúsund tónleikagestum duldist ekki að veikindin höfðu tekið sinn toll. Finni var vel og lengi fagnað eftir að hafa spilað af krafti og tilfinningu sem einkenndi tónlistarsköpun hans alla tíð,“ segir í ævisögu Helenu. „Þetta var kveðja Finns Eydal til síns heimafólks eftir að hafa yljað því með hljóðfæraleik og söng í um 43 ár. En allra síðasta kveðja Finns í tónlistinni var á Selfossi tæpri viku síðar, laugardagskvöldið 26. október, þar sem hann, Helena og Þorvaldur Halldórsson komu fram með hljómsveit Ingu Eydal á skemmtun sem sömuleiðis var nefnd Kvöldið er okkar. Þeim hjónum var ákaft fagnað og það var sæll og ánægður Finnur Eydal sem yfirgaf sviðið í síðasta skipti.“

Finnur lést 16. nóvember 1996. Bræðurnir létust því báðir aðeins 56 ára að aldri.