Fara í efni
Menning

Níu styrkir veittir til fjölbreyttra viðburða

Ljósmynd: Auðunn Níelsson

Níu styrkir hafa verið veittir úr listsjóðnum VERÐANDI fyrir árið 2023-2024.  „Viðburðirnir eru eins fjölbreyttir og þeir eru margir. Klassísk tónlist, jazzperlur, samtímadansverk, barnatónlistar- og danssmiðja, útgáfutónleikar þjóðlaga og popptónlistar, angurværir ástarsöngvar, raf- og óperutónlist munu laða að breiðan hóp gesta á nýju starfsári í [Hofi],“ segir í tilkynningu frá sjóðnum.

„Það var sérstaklega skemmtilegt að sjá fjölbreytni umsóknanna, sjá metnað listafólksins og vilja til að nýta sér aðstöðuna hér í Hofi fyrir þeirra flottu og krefjandi viðburði. Styrkþegar starfsárs Menningarfélags Akureyrar 2023-2034 bjóða uppá forvitnilega, fjölbreytta og kröftuga viðburði sem munu laða gesti til sín allt frá 3 ára aldri. Við óskum þeim innilega til hamingju með styrkinn og hlökkum mikið til að taka á móti þeim og gestum þeirra í hús,“ segir Kristín Sóley Björnsdóttir viðburðastjóri Menningarfélags Akureyrar og verkefnastjóri VERÐANDI listsjóðs.

Alls bárust 16 umsóknir en þessar níu hlutu brautargengi:

  • Guðný Ósk Karlsdóttir: Leitin að regnboganum, dans- og tónlistarsmiðja fyrir börn við nýtt frumsamið efni.
  • Brynjólfur Brynjólfsson og Sigríður Hulda Arnardóttir: Úr tóngarðinum, útgáfutónleikar með frumsömdu efni.
  • Vigdís Þóra Másdóttir og Helga Margrét Clarke: Íslenskar Jazz perlur.
  • Gísli Rúnar Víðisson: Úr öllum áttum, klassískir tónar.
  • Yuliana Palacios: Hér á ég heima, frumsamið samtímadansverk.
  • Gísli Magnússon: Gímaldin flytur Hetfield píanó-próekt.
  • Rósa María Stefánsdóttir: Ástarsæla, gullperlur ástarsöngvanna.
  • Michael J. Clarke: Vortónleikar Hljómsveitar Akureyrar.
  • Rakel Björk Björnsdóttir: ÞAU taka Norðurland, útgáfutónleikar; frumsamin tónlist við texta norðlenskra skálda.

_ _ _

Það eru Akureyrarbær, Menningarfélagið Hof ásamt Menningarfélagi Akureyrar sem standa að baki listsjóðnum VERÐANDI. Megintilgangur sjóðsins er að styrkja listafólk til að nýta Menningarhúsið Hof sem vettvang fyrir listsköpun sína og auðvelda ungu listafólki og þeim sem starfa utan stofnana að koma þar fram. Allir viðburðir styrkþeganna verða sýnilegir á mak.is þar sem nálgast má nánari upplýsingar.