Íþróttir
Níu Akureyringar heiðraðir á Skíðaþingi
12.10.2026 kl. 17:00
Þau voru heiðruð á Skíðaþingi fyrir ötult starf í þágu skíðaíþróttarinnar á Akureyri. Frá vinstri: Eyþór Ólafur Bergmannsson, Sólrún Tryggvadóttir, Friðbjörn Benediktsson, Eyrún Björg Þorfinnsdóttir, Erlingur Guðmundsson, Arna Ívarsdóttir, Guðjón Marteinsson, Kolbrún Ingólfsdóttir og Kristjan Vilhelmsson. Lengst til hægri á myndinni eru Heiðrún Harðardóttir frá Ströndum, með þakkarskjöld SKÍ fyrir framúrskarandi starf og uppbyggingu í skíðaskotfimi, og Gísli Reynisson, formaður Skíðasambands Íslands. Mynd: ska.is.
Nokkrir af máttarstólpum skíðaíþróttarinnar á Akureyri voru heiðraðir á 77. Skíðaþingi Skíðasambands Íslands um liðna helgi fyrir ómetanlegt starf og mikilvægt framlag til íþróttarinnar.
Þau sem voru heiðruð voru: Arna Ívarsdóttir, Erlingur Guðmundsson, Eyrún Björg Þorfinnsdóttir, Guðjón Marteinsson , Sólrún Tryggvadóttir, Kolbrún Ingólfsdóttir, Kristján Vilhelmsson, Friðbjörn Benediktsson og Eyþór Ólafur Bergmannsson. Þau Kolbrún og Kristján hlutu gullmerki SKÍ.
- Arna Ívarsdóttir hefur um árabil verið ein af þeim sem lagt hafa grunninn að öflugu barna- og unglingastarfi Skíðafélags Akureyrar.
- Erlingur Guðmundsson hefur um langt árabil verið traustur liðsmaður Skíðafélags Akureyrar, bæði sem þjálfari yngri flokka og öflugur sjálfboðaliði.
- Eyrún Björg Þorfinnsdóttir hefur um árabil gegnt lykilhlutverki í framkvæmd Andrésar andar leikanna sem starfsmannastjóri alpagreina.
- Guðjón Marteinsson er einn af þessum ómetanlegu sjálfboðaliðum sem halda áfram að gefa af sér til félagsins löngu eftir að eigin börn hafa lokið keppnisferlinum.
- Sólrún Tryggvadóttir hefur um árabil verið ein af lykilmanneskjum á bak við farsæla framkvæmd Andrésar andar leikanna. Ásamt Eyrúnu Björgu hefur hún borið ábyrgð á starfsmannahaldi alpagreina og hefur setið í barna- og unglinganefnd SKA.
- Kolbrún Ingólfsdóttir og Kristján Vilhelmsson hafa um áratugaskeið verið órjúfanlegur hluti af skíðafjölskyldunni á Akureyri. Kolla er mörgum kunn sem rödd Andrésar andar leikanna. Kristján hefur sömuleiðis verið sannkallaður klettur í starfi félagsins. Hann er ávallt boðinn og búinn að svara kallinu og leggja félaginu lið, hvar sem þörfin er mest.
- Friðbjörn Benediktsson hefur verið mikilvægur frumkvöðull í uppbyggingu snjóbrettaíþróttarinnar á Akureyri. Hann var meðal þeirra sem komu brettadeild Skíðafélags Akureyrar á laggirnar árið 2011.
- Eyþór Ólafur Bergmannsson hefur á fullorðinsárum lagt mikla natni við skíðagönguna í Skíðafélagi Akureyrar. Eyþór hefur setið óslitið í skíðagöngunefnd SKA um margra ára skeið
Nánar er sagt frá viðurkenningunum og starfi þessara sjálfboðaliða úr röðum Skíðafélags Akureyrar sem voru heiðraðir á Skíðaþingi - sjá hér.