Nicole Kidman nýr „Akureyrarvinur“
Hin heimsfræga leikkona, Nicole Kidman, drap niður fæti á Akureyri á dögunum; um nýliðna helgi ef marka má myndir á Instagram reikningi hennar og sagnir fólks sem kveðst hafa séð hana hér og þar, meðal annars við Jólahúsið í Eyjafjarðarsveit.
Kidman er áströlsk-bandarísk og ein frægasta Hollywood leikkona síðari ára. Fyrir nokkrum árum lék hún í víkingamyndinni The Northman sem tekin var upp á Íslandi en mun að þessu sinni hafa verið hér á ferð með systur sinni og tveimur dætrum.
Vísir segir leikkonuna hafa verið á Snæfellsnesi þegar almyrkvi á sólu tryllti landsmenn og fjölmarga gesti í síðustu viku.
How do you like ...?
How do you like Iceland? var stundum spurt í gamla daga þegar stórstjörnur stigu frá borði á Keflavíkurflugvelli – jafnvel þegar þær voru enn röltandi niður landganginn. Hvernig kanntu við Ísland? Eftir að snjallir menn fundu upp samfélagsmiðla er spurningin óþörf því fræga fólkið tjáir sig þar, frjálst og óháð, og Kidman lýsir mikilli ánægju með Íslandsdvölina á Instagram og Facebook. With love from Iceland, skrifar hún á Instagram með mynd af sér við rauða hjartað vinsæla í miðbæ Akureyrar um helgina: Ástarkveðja frá Íslandi. Jafnvel væri við hæfi að þýða það Hjartans kveðja frá Íslandi.
Hjartað sem kaupmennirnir Úlfar Gunnarsson og Þórhallur Jónsson settu upp fyrir nokkrum misserum er áberandi aðdráttarafl, varla kemur sá ferðamaður til bæjarins sem ekki lætur mynda sig við hjartað og skiptir þá ekki máli hver á í hlut.
Ekki er annað að sjá en Kidman og hennar fólk hafi siglt með lúxusskipinu Scenic Eclipse, sem lagðist að Tangabryggju föstudagskvöldið 14. ágúst og lét úr höfn síðari hluta laugardags. Hvort þær bæði komu og fóru með skipinu, ellegar komu eða fóru, hefur akureyri.net ekki hugmynd um og skiptir ekki máli.
„Íslandsvinur“ er kunnur titill ýmissa frægðarmenna sem heiðrað hafa landann með nærveru sinni til lengri eða skemmri tíma. Þar sem hér er um að ræða svokallaðan staðarmiðil leyfir hann sér að þrengja sjónarhornið, sæmir leikkonuna titlinum „Akureyrarvinur“ og vonar að hún beri hann stolt um ókomna tíð.
Instagram reikningur Nicole Kidman


Eyjafjörður – Horft út fjörðinn af Tangabryggju. Gott ef heiðin fallega og Vaðlaskógur eru ekki í fjarska á hægri myndinni.
