Fréttir
Neyðarstig virkjað vegna einkaflugvélar
06.04.2026 kl. 17:55
Mynd: Þorgeir Baldursson
Einkaflugvél sem tók á loft frá Akureyrarflugvelli síðdegis í dag lenti í vélarvandræðum svo flugslysaáætlun á neyðarstigi var virkjuð. Um borð í vélinni voru 11 manns en hún lenti heilu og höldnu eftir tæplega hálftíma hringsól og engum varð meint af.
Eftirfarandi tilkynning var birt á Facebook síðu lögreglunnar laust fyrir klukkan sex í kvöld:
Klukkan 16:00 í dag var flugslysaáætlun fyrir Akureyrarflugvöll virkjuð á neyðarstigi vegna einkaflugvélar sem var að taka á loft frá Akureyrarflugvelli og átti í vélarvandræðum. Um borð voru 11 einstaklingar.
Þegar ræst er út á neyðarstigi fyrir Akureyrarflugvöll þá virkjast allar viðbragðseiningar í Eyjafirði sem og landsdekkandi ábyrgðar- og þjónustueiningar á höfuðborgarsvæðinu.
Sem betur fer lenti vélin heilu og höldnu kl. 16:26 og í kjölfarið var neyðarstigi aflýst. Viljum við þakka öllum viðbragðseiningum kærlega fyrir þeirra framlag og skjótt viðbragð nú sem endra nær.