Fréttir
Neyðarkallinn verður seldur næstu daga
05.11.2025 kl. 18:00
Guðrún Elísabet Jakobsdóttir og Ágústa Ýr Sveinsdóttir, félagar í Súlum, björgunarsveitinni á Akureyri, seldu Neyðarkallinn við verslun Nettó í Hrísalundi í morgun. Mynd: Þorgeir Baldursson
Árleg sala Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Neyðarkallinum hófst í morgun. Björgunarsveitarfólk verður áberandi við fjölfarna staði næstu daga og í einhverjum sveitarfélögum verður gengið í hús. Sölunni lýkur næstkomandi sunnudag, að því er segir í tilkynningu frá Landsbjörgu.
Hefð er fyrir því að forseti Íslands taki á móti Neyðarkalli á fyrsta söludegi og Halla Tómasdóttir kom að Elliðaánum í Reykjavík í morgun í þeim erindagjörðum ásamt eiginmanni sínum, Birni Skúlasyni.
Að þessu sinni var það öflugur straumvatnsbjörgunarhópur sem flutti Neyðarkallinn yfir straumvatnið og afhenti forseta, segir í tilkynningu frá Landsbjörgu. Við tilefnið ítrekaði Halla mikilvægi sjálfboðaliðastarfs Slysavarnafélagsins Landsbjargar fyrir samfélagið og vonaðist til að vel yrði tekið á móti sölufólki.

Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, og Björn Skúlason eiginmaður hennar þegar forsetinn tók á móti Neyðarkallinum í morgun. Mynd: Landsbjörg/Sigurður Ólafur Sigurðsson
Neyðarkallinn í ár er í hlutverki straumvatnsbjörgunarmanns „og þannig heiðrum við minningu góðs félaga, Sigurðar Kristófers McQuillan Óskarssonar, sem lést í hörmulegu slysi við æfingar í straumvatni, fyrir rétt um ári síðan. Það var gert í góðu samráði við fjölskyldu Sigurðar og björgunarsveitina Kyndil, sem hann veitti formennsku,“ segir í tilkynningu frá Landsbjörgu.
Árleg sala Neyðarkallsins er ein af stóru fjáröflunarleiðum björgunarsveitanna „og stendur undir eðlilegri endurnýjun björgunarbúnaðar og þjálfunar félaga björgunarsveita um land allt,“ segir í tilkynningunni.