Fara í efni
Mannlíf

Nei, Svarti skóli er ekki nýtt kaffihús!

Skilti við Lundargötu hefur vakið forvitni vegfarenda og sumir hafa haldið að í húsinu sé rekið kaffihús. Nafnið á skiltinu vísar í sögu hússins en þegar húsið var byggt var smiðja við húsið sem bar heitið Svartiskóli.

Við Lundargötu 7 á Akureyri hangir forvitnilegt skilti með áletruninni „Svarti skóli anno 1894 – Black school“. Er búið að endurvekja galdraskóla Sæmundar fróða í húsinu? Eða er komið nýtt kaffihús í bæinn? Blaðamaður akureyri.net bankaði upp á og kannaði málið.

Það er Jóhann Freyr Jónsson, betur þekktur sem Jói rækja, sem býr í Lundargötu 7 ásamt konu sinni Örnu Maríu. Hann viðurkennir að skiltið hafi vissulega vakið athygli vegfarenda en það hefur líka valdið misskilningi. „Við höfum lent í því að útlendingar hafi hreinlega labbað hér inn og heimtað kaffi af því þeir hafa haldið að skiltið vísi á kaffihús,“ segir Jói kíminn. Hann segist reyndar bara hafa haft gaman af þessu og hafi til dæmis hellt upp á fyrir hóp af kaffiþyrstum Frökkum sem voru komnir alla leið inn á stofugólf hjá honum. Hann segist þó engin áform hafa uppi um það að opna kaffihús, húsið sé einfaldlega heimili hans og konunnar.

Útlendingar hafa gengið beint inn í stofu á heimili Jóa rækju á Eyrinni og pantað kaffi þar sem þeir hafa haldið að kaffihús sé rekið í húsinu. Skiltið utan á húsinu vekur forvitni og kaffilöngun.

Járnsmiðja upphaflega á lóðinni

Skiltið passar húsinu afar vel og það er engin tilviljun að það hangi þar uppi því saga Lundargötu 7 tengist heitinu Svartiskóli. Samkvæmt pistli sem Arnór Bliki Hallmundsson skrifaði um Lundargötu 7 var húsið byggt árið 1895 af Ólafi Jónatanssyni, járnsmið. Þá var húsið einlyft timburhús með háu portbyggðu risi. Síðan hefur a.m.k fjórum sinnum verið byggt við húsið, síðast 1931. Á lóðinni byggði Ólafur einnig smiðju sem kölluð var Svartiskóli. Síðar var smiðjunni breytt í íbúð og einhvern tímann mun einnig hafa verið járnsmiðja í framhúsinu. Nafnið á skiltinu góða tengist því sögu hússins og fyrsta ábúanda þess, járnsmiðnum Ólafi. Jói segir að sjálft skiltið hafi verið uppi á nokkrum fyrirtækjum í bænum, síðast hjá skósmiðnum í Hafnarstræti. Þegar skiltið fannst síðan í geymslu og var á leið í ruslið segir Jói að sér hafi tekist að sníkja það út. Hann hafi síðan gert skiltið upp og sett það á húsið til heiðurs sögu þess enda passar stíll þess vel við húsið.


Þegar Jói og Arna María keyptu Lundargötu 7 var húsið ekkert nema mold, grjót og útveggir. Endurbæturnar tóku tvö ár. 

Jói og Arna María keyptu húsið, sem er um 120 fm að stærð, árið 2022 en þá var það mjög illa farið. „Í margra augum var það ónýtt, það voru hvorki veggir né gólf né neitt í því, það var bara óeinangruð skel,“ segir Jói. Fyrrum eigandi hafi verið byrjaður að gera húsið upp og hafði hann þegar hreinsað allt út og aðeins skilið útveggina eftir. Sem var ágætt að sögn Jóa, því það hafi í raun verið leiðinlegasta vinnan. Rúmum sex mánuðum eftir kaupin flutti parið inn á efri hæðina þar sem þau höfðu gert bráðabirgðaaðstöðu fyrir sig svo hægt væri að búa í húsinu. Það létti á útgjöldum og gerði framkvæmdir einfaldari að sögn Jóa. „Ég bara vaknaði í vinnugallanum,“ rifjar hann upp.

Unnið við ytra byrðið á húsinu en útlit hússins tók algjörum stakkaskiptum á einni helgi. Myndin fyrir neðan sýnir hvernig húsið leit út áður en það var klætt með timburklæðningu. 

Óhræddur við stór verkefni

Endurbæturnar stóðu yfir í tæp tvö ár, þau byrjuðu innandyra en enduðu á að skipta um ytra byrðið á húsinu. „Þetta var bara tekið á þremur dögum með aðstoð góðra vina. Á föstudegi byrjaði ég að rífa járnið utan af og á mánudegi var húsið orðið gerbreytt,“ segir Jói og bætir við að breytingin á húsinu hafi vakið slíka athygli að fólk hafi beinlínis keyrt Lundargötuna sérstaklega til að kíkja á framkvæmdirnar.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Jói ræðst í stórar framkvæmdir. Önnur húsaverkefni sem hann hefur staðið í er bygging Mótorhjólasafnsins í Innbænum, þá gerði hann upp hús við Grundargötu og byggði sumarbústað við rætur Hlíðarfjalls. Hann er því vanur því að taka til hendinni og óhræddur við að ráðast í stór verkefni. „Ég er nú samt ekki viss um að húsin verði fleiri, maður er enn að jafna sig eftir þetta verkefni,” segir Jói og hlær.


Það fóru margar vinnustundir í húsið en Arna María og Jói fluttu inn á efri hæðina aðeins nokkrum mánuðum eftir kaupin með bráðabirgðaraðstöðu. Það að búa á verkstað flýtti fyrir framkvæmdunum og létti á útgjöldunum. 

Svartur áberandi innandyra

Þó að hvorki sé rekin járnsmiðja né galdraskóli í húsinu þá er þó margt sem hefur óbeina tilvísun í Svartaskólanafnið. Allar innréttingar í húsinu eru t.d. svartar, bæði á baði og í eldhúsi og meira að segja sturtan er klædd með svörtu báruáli. Sófasettið er dökkt og ísskápurinn kolsvartur. „Ég bíð eiginlega bara eftir því að þvottavélin og þurrkarinn gefi upp öndina svo ég geti skipt þeim út fyrir svört tæki,“ segir Jói kíminn, býður svo blaðamanni kaffibolla, kolsvartan, alveg ókeypis, enda sannarlega ekkert kaffihús rekið í húsinu.

Sturtan er klædd með svörtu báruáli. Fleira er kolsvart innandyra t.d. flest heimilistæki.