Fara í efni
Menning

Mótorhjólasafnið fær aðra milljón frá Tíunni

Tían, Bifhjólaklúbbur Norðuramts, færði í gær Mótorhjólasafni Íslands á Akureyri eina milljón króna að gjöf.

Þetta er í annað sinn á tveimur árum sem Tían styrkir safnið um eina milljón, klúbburinn gerði það einnig í apríl 2023. Á vef Tíunnar kemur fram að um helmingur styrksins sé úr félagsgjaldasjóði klúbbsins en hinn helmingurinn frá söfnunum sem klúbburinn hefur staðið fyrir.

Þar segir: Tían er klúbbur áhugafólks um bifhjól af öllum gerðum, og vill stuðla að tilurð og framgangi bifhjólasafns í minningu Heiðars Þ .Jóhannssonar #10 og sjá til þess að bifhjólafólk skemmti sér annað slagið.