Menning
Móðurmálið, Viðbragð og 80 ára afmæli Tónak
02.02.2026 kl. 14:00
Hvaða menningarviðburðir eru í boði á svæðinu þessa vikuna? Akureyri.net skellir í samantekt í byrjun hverrar viku, þar sem lesendur geta séð hvað verður á seyði og penslað inn í dagatalið.
Viðburðir
- Othello-slagurinn á Akureyri og aðrar þorskastríðssögur - Fimmtudagsfyrirlestur með dr. Guðna Th. Jóhannessyni á Minjasafninu. Hluti af fyrirlestraröð. 5. febrúar kl. 17.00.
- 80 ára afmæli Tónlistarskólans á Akureyri – Margt verður um að vera á afmælisárinu, en fyrst verður boðið til veislu í Hofi laugardaginn 7. febrúar á milli 11-15. Fjölbreytt dagskrá!
- Þriðjudagsfyrirlestur á Listasafninu - Auður Aðalsteinsdóttir bókmenntafræðingur fjallar um listakonuna Drífu Viðar. Þriðjudaginn 3. feb kl 16:15-17:00.
- Gervigreind á mannamáli – opið erindi á Amtsbókasafninu. Magnús Smári Smárason fer yfir gervigreindarmálin án tæknislangurs. Miðvikudaginn 4. febrúar kl. 17-18.
- Skiptibókamarkaður með erlendar bækur á Amtsbókasafninu allan mánuðinn, en bókasafnið heldur upp á 'Mánuð móðurmáls'. Einnig verður bolla- og krukkumálun á safninu í tilefni mánaðarins á laugardaginn kemur, 7. feb á milli 13-15.
- Borðspilakvöld eru alla þriðjudaga á Amtsbókasafninu kl. 17.00. Myndarlegt úrval borðspila er á safninu, og bæði hægt að nota þau eða koma með sín eigin. Öll velkomin.
- Ritfangar hittast annan hvern þriðjudag á Amtsbókasafninu kl. 17-18.30. Sesselía Ólafs heldur utan um hópinn, en öll eru velkomin sem hafa áhuga á skapandi skrifum. 10. febrúar er næsti hittingur.
- Pabbapíla á Verksmiðjunni - Alla þriðjudaga í vetur verður pabbapíla, kostar ekki neitt og pílur fyrir þá sem ekki eiga. Á milli 18 - 22.
- Íslenskuþjálfun Rauða krossins á Amtsbókasafninu - Alla fimmtudaga frá 16.30 til 18.00 er boðið upp á íslenskuspjall fyrir öll sem vilja bæta sig í íslensku í góðum félagsskap.

Tónlistarskólinn á Akureyri er 80 ára í ár, en fyrsti afmælisviðburður verður á laugardaginn kemur í Hofi. T.v. er mynd frá 70 ára afmælistónleikum, sem Skapti Hallgrímsson tók.
Listasýningar
- Undir berum himni - vatnslitamyndir Guðmundar Ármanns í Deiglunni. Opnun á laugardaginn kemur, 7. febrúar kl. 14.
- Viðbragð - málþing og sýningarlok – Sýningunni Viðbragð lýkur á Listasafninu á Akureyri sunnudaginn 8. febrúar með málþingi á milli kl. 13-15.
- Guðmundur Ármann: Aðflæði – Yfirlitssýning listamannsins, sem spannar 65 ára feril. Sýnt á Listasafninu á Akureyri, en sýningin stendur til 4. maí 2026.
- Björk Viggósdóttir - Hreyfing fyrir sjón / Movement for vision – Sýning á Listasafninu á Akureyri. Stendur til 3. maí 2026.
- Listasinfóníur - myndlistasýning Rósu Njálsdóttur á Bókasafni HA. Opnun fimmtudaginn 15. janúar kl. 16:00. Þar eftir er opið á opnunartíma bókasafnsins.
- Viðbragð - Samsýning fimmtán íslenskra og erlendra listamanna á Listasafninu á Akureyri. Sýningin stendur til 8. febrúar 2026.
- James Merry - Nodens, Sulis & Taranis – Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 8. febrúar 2026.
- Ýmir Grönvold - Milli fjalls og fjöru – Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 22. febrúar 2026.
- Margskonar 2 - Valin verk fyrir sköpun og fræðslu - Listasafnið. Sýningin stendur til 8. febrúar 2026.
- Sólstöður - Guðrún Sigurðardóttir sýnir í Hofi. Sýningin stendur til 22. febrúar 2026.
- Undir berum himni - Jóhannes Sveinsson Kjarval. Sýning á teikningum og skissum Jóhannesar Sveinssonar Kjarvals á Listasafninu á Akureyri. Sýningin stendur til 17. maí 2026.
Endilega hafðu samband á rakel@akureyri.net ef að þú vilt koma þínum viðburði á listann. Hann þarf að vera opinn öllum.