Fara í efni
Fréttir

Minna atvinnuleysi fyrir norðan en á landsvísu

Mynd: Þorgeir Baldursson

Formaður Einingar-Iðju bindur vonir við lækkun verðbólgu og vaxta


Skráð atvinnuleysi á Norðurlandi eystra í síðasta mánuði var 2,3% en á landinu öllu var skráð atvinnuleysi 4,0%. Þetta kemur fram í gögnum Vinnumálastofnunar, sem spáir því að atvinnuleysi hækki í þessum mánuði.

Akureyri er langfjölmennasta sveitarfélagið á Norðurlandi eystra og því má ætla að skráð atvinnuleysi þar sé svipað og í landshlutanum í heild.

Stéttarfélagið Eining-Iðja er stærsta stéttarfélagið á Norðurlandi eystra og þjónar launafólki á Eyjafjarðarsvæðinu. Tryggvi Jóhannsson formaður félagsins segir sveiflurnar í atvinnuleysi á svæðinu oftast minni en á mörgum öðrum landsvæðum, meðal annars vegna fjölbreytts atvinnulífs. Hann segir atvinnuleysi þó gjarnan árstíðarbundið.

Tryggvi Jóhannsson formaður Einingar-Iðju.

Býst við auknu atvinnuleysi

Vinnumálastofnun spáir því að atvinnuleysi aukist í október og Tryggvi tekur undir þá spá.

„Já, ég er sammála þessari greiningu Vinnumálastofnunar, það eru vissulega blikur á lofti og því miður bendir margt til þess að atvinnuleysi sé að aukast. Staðan í ferðaþjónustu er að þrengjast og sömu sögu er að segja um fasteignamarkaðinn, sem eðlilega hefur bein áhrif á starfsfólk í greininni. Þessi staða á við um landið allt og þar með stöðuna hérna fyrir norðan.“

Framlenging kjarasamninga leiði til lægri verðbólgu og lægri vaxta

Tryggvi segir að heilt yfir sé hljóðið í félagsmönnum þó ágætt.

„Auðvitað er staðan í þjóðfélaginu farin að hafa áhrif, ég nefni í því sambandi vaxtastigið og háa verðbólgu. Það er þó von okkar að eftir að kjarasamningar voru framlengdir sé að nást góð sátt um að halda aftur að hækkunum sem skili okkur lægri verðbólgu og þar með lægri vöxtum.“

Mikill fjöldi ferðamanna sækir Akureyri ár hvert en „staðan í ferðaþjónustu er að þrengjast“ segir formaður Einingar-Iðju. Mynd: Þorgeir Baldursson

Víðtæk könnun meðal félagsmanna í gangi

Eining-Iðja hefur í mörg ár látið Gallup kanna ýmis atriði er snerta kjör, viðhorf og starfsaðstæður félagsmanna. Þessa dagana er sú vinna einmitt í gangi. Tryggvi segir mikilvægt að greina með markvissum hætti viðhorf og aðstæður félagsmanna.

„Niðurstöðurnar gefa okkur góðar upplýsingar til að bæta þjónustu við félagfólk okkar. Eins gefa þessar niðurstöður úr könnunni hagnýtar upplýsingar um stöðu okkar félagsfólks. Við spyrjum líka um mál sem eru í umræðunni hverju sinni og nýtum niðurstöðurnar til að styðja við okkar málflutning þegar við eigum samtöl um þau málefni,“ segir Tryggvi Jóhannsson formaður Einingar-Iðju.