Fara í efni
Mannlíf

Mexíkó – Maturinn segir sögu þjóðarinnar

Þegar Spánverjar komu til Mið-Mexíkó árið 1519, fundu þeir ekki frumstæða matarhefð sem beið þess að verða „siðmenntuð“. Þeir gengu inn í þróaðan matarmenningarheim með aldagamlar ræktunarhefðir, markaði, sérhæfða matreiðslu og flókið bragðkerfi.

Þetta segir Þráinn Lárusson í mögnuðum matarpistli í röðinni MATARÞRÁ-INN þar sem fjallar í dag um mexíkóska matarmenningu.

„Þegar fyrsti Spánverjinn steig fæti á grund nýja heimsins rauf hann, án þess að hann gerði sér grein fyrir því, innsiglið að þróuðum heimi gjörólíkra plantna, dýra og þjóða. Heilum sex og hálfu árþúsundi fyrr höfðu veiði- og söfnunarsamfélög í þessari álfu tekið að tileinka sér landbúnað og á þessum árþúsundum þróað eitt merkilegasta ræktunarkerfi mannkynssögunnar.“

Þráinn segir líklega ekki ofsögum sagt að hugtakið „mexíkóskur matur“ nái illa utan um alla þá margbreytilegu matargerð sem finna má í þessu stóra landi. 

„Við tölum á sama hátt gjarnan um kínverska eða indverska matargerð vegna þess að við stöndum fyrir utan þessa menningarheima. Innan landanna sjálfra er greiningin miklu svæðisbundnari og matargerðin getur verið gjörólík innbyrðis; þar eiga héruð, borgir og þjóðarbrot sínar ólíku hefðir, hráefni og bragðheima,“ segir Þráinn og heldur áfram: „Þetta er ekki ósvipað því þegar fólk utan okkar heimshluta talar um „evrópskan mat“. Við Evrópubúar sjáum strax hversu gríðarlegur munur er á matargerð Andalúsíu, Sikileyjar, Frakklands eða Íslands ...“


Pistill Þráins: Mexíkó – þar sem matur segir sögu heillar þjóðar