Meiri úrkoma á 5 dögum en frá áramótum

Íbúar í Hrísey fengu aldeilis vætusamt upphaf í júnímánuði, en samkvæmt mælingum Kristins Frímanns Árnasonar, sem um árabil hefur mælt úrkomu í eyjunni fyrir Veðurstofu Íslands, féllu 143,7 millimetrar af regni á fyrstu fimm dögum mánaðarins. Það er meira en samanlögð úrkoma fyrstu fimm mánaða ársins, sem nam 141,3 mm.
Man ekki eftir jafn mikilli úrkomu
„Það rigndi nánast stanslaust allan sólarhringinn þessa fimm daga, rúðuþurrkurnar höfðu ekki undan á traktornum og maður sá ekki marga á ferli. Þetta er sú mesta úrkoma á jafn skömmum tíma sem ég man eftir hér frá því ég byrjaði að mæla árið 1995,“ segir Kristinn. Hann nefnir líka að þar sem það kom mikið hvassviðri með úrkomunni þá hafi verið sérstakt hversu mikil úrkoma mældist. „Því þegar það er hvasst þá fer nánast öll úrkoman ekki ofan í mælinn þannig að það var líka dálítið sérstakt að það rigndi svona mikið í þessu hvassviðri.“
Úrkoma í Hrísey í maí mældist aðeins 18,3 mm en 143,7 mm fyrstu fimm daga júnímánaðar. Mynd: Gestur Leó Gíslason
Venjulega fremur þurrt í Hrísey
Hrísey hefur yfirleitt verið talin fremur þurr eyja og þess vegna er þessi mikla úrkoma mjög óvenjuleg. „Það fara oft úrkomuklakkar meðfram fjöllunum og ná ekkert út til eyjarinnar, sérstaklega yfir sumartímann. Það er annar úrkomumælir hjá Tjörn í Svarfaðardal, sem er nú ekki langt frá okkur, kannski þrír fjórir kílómetrar í beinni flugleið, en það getur verið furðulegt hvað er stundum himinn og haf á milli þessara tveggja mæla. Það getur verið ekki neitt hjá mér en mælst mikið á Tjörn og svo öfugt,“ segir Kristinn.
Þrátt fyrir mikla vætu slapp Hrísey betur en margir gætu haldið. „Eyjan ræsti sig nokkuð vel og það er allt orðið þurrt núna,“ segir Kristinn og bætir við að þó að vatn hafi safnast í polla hafi enginn orðið fyrir tjóni eftir því sem hann best vissi. Hann nefnir að Lamhagalækurinn hafi vaxið mikið og breyst í á. Segir hann heimamenn hafa líkt læknum við Þjórsá í ham og var rætt í gríni hvort ekki ætti að virkja lækinn. Þetta er annars annað árið í röð sem mikil úrkoma mælist Hrísey á þessum tíma árs. „Á svipuðum tíma í fyrra var hér líka mikil úrkoma en veðrið var þó skárra. Í fyrra var snjókoma og þá hafði maður miklar áhyggjur af fuglunum. Núna var þetta bara gríðarleg rigning og svo líka hvassviðri.”
Fyrir áhugasama þá er rétt að benda á að á vef Veðurstofu Íslands er hægt að skoða úrkomutölur úr fleiri veðurstöðvum á landinu.