Fara í efni
Mannlíf

Meðvituð hreyfing og aukin líkamsvitund

„Á síðustu árum hefur skilningur okkar á hreyfingu og heilsu verið að breytast. Í auknum mæli er horft til þess hvernig hreyfing hefur áhrif á líðan okkar, taugakerfið og tengingu okkar við eigin líkama, fremur en að einblína eingöngu á afköst, kaloríubrennslu eða árangur í líkamsrækt.“

Þannig hefst heilsupistill Guðrúnar Arngrímsdóttur sem akureyri.net birtir í dag. Þessi nálgun kallast á ensku somatic movement eða mindful movement; Guðrún talar um meðvitaða hreyfingu. „Hún snýst um að auka líkamsvitund með því að hægja á og skynja það sem við erum að gera í gegnum hreyfingu.“

Guðrún skrifar: „Meðvituð hreyfing kemur ekki í stað hefðbundinnar þjálfunar heldur bætir við mikilvægum þætti, að það hvernig við hreyfum okkur skiptir ekki síður máli en hversu mikið við hreyfum okkur.“

Pistill Guðrúnar: Meðvituð hreyfing