Matthías lifnar við á ný í Sigurhæðum

Sigurhæðir opna á ný eftir vetrarlokun á morgun, laugardaginn 7. júní kl. 13.00. Nú hefur fjölgað í búi, en fyrrum heimilisfólk þessa sögufræga húss hefur lifnað við sem leirskúlptúrar. Það er Margrét Jónsdóttir sem er leirlistakonan á bak við verkin sem eru sköpuð sérstaklega fyrir Sigurhæðir, en á hverju ári er sett fram ný heildarsýning á staðnum ásamt ferskum verkum eftir samtímalistamann.
Ég hafði hvert og eitt þeirra í huga þegar ég var að vinna skúlptúrana
Margrét á fjörutíu ára starfsafmæli í ár, en sýning hennar í Sigurhæðum er hluti af þeim tímamótum. „Mér finnst mikill heiður að vera boðið að halda sýningu í Sigurhæðum. Starfsemin þar er svo spennandi, en þar er boðið upp á áhugaverða blöndu af sögu hússins og nýrri list. Til þess að undirbúa sýninguna, kynnti ég mér sögu Matthíasar og fjölskyldu hans.“
Skúlptúrarnir blandast inn í heimilislega stofuna, en þar er einmitt heimilislegt - af því að enn eru innanstokksmunir og persónulegar eigur heimilisfólksins á sínum stað. Mynd: RH
Skapandi menning hússins lifir enn
„Þau voru svo mörg, sem bjuggu í þessu húsi,“ segir Margrét. „Þau unnu flest að einhverju skapandi, ekki bara Matthías heldur líka kona hans og dætur til dæmis. Mig langaði að minnast þeirra allra, og hafði hvert og eitt þeirra í huga þegar ég gerði skúlptúrana. Ég vil að gestir hússins finni fyrir því, hversu stór þessi fjölskylda var,“ segir Margrét.
„Við höfum stillt fólkinu upp hér og þar, og flest eru hérna komin sem hafa búið í húsinu. Mig langar að bæta við, að Sigurhæðir eru einstaklega spennandi staður að heimsækja, og gaman að sýningin þar sé síbreytileg og lifandi. Það er ekkert nóg að koma bara einu sinni og segjast vera búin að heimsækja Sigurhæðir, vegna þess að á hverju ári er eitthvað nýtt að sjá,“ segir Margrét að lokum. Hún er líka með yfirlitssýningu verka sinna á Listasafninu á Akureyri um þessar mundir, en hér má lesa umfjöllun um þá sýningu á Akureyri.net.
Enn á ný lítur Matthías út um skjáinn og virðir fyrir sér Pollinn og Eyjafjörðinn. Margt hefur breyst, en sagan og nærvera fjölskyldu þjóðskáldsins er á sínum stað. Myndir: Wikipedia (t.v.) og RH (t.h.)
Opnunin í Sigurhæðum hefst kl. 13.00 á morgun, laugardaginn 7. júní, en hún endar á listamannaspjalli með Margréti. Logi Már Einarsson, ráðherra menningarmála nýsköpunar og háskóla mætir á staðinn og flytur stutt ávarp. Tónlistaratriði verður frumflutt, en það er eftir Gunnar Haraldsson, meistaranema í tónsmíðum við Listaháskóla Íslands. Hann samdi verkið sérstaklega í vor fyrir opnunina, í samvinnu við Margréti fyrir Sigurhæðir.
Í viðburðarlýsingu segir að léttar veitingar verði í boði, enginn aðgangseyrir og öll eru velkomin.
Ástríður Jochumsdóttir, systir Matthíasar. Mynd: RH
Starfsemi og sérverkefni Menningarhúss í Sigurhæðum í ár eru samfjármögnuð af ráðuneyti Menningar-, nýsköpunar og háskóla - Barnamenningarsjóði og Örvari, Akureyrarbæ, Uppbyggingarsjóði Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi Eystra, Menningarsjóði Akureyrar, Kvenréttindafélagi Íslands, Útgáfufélaginu, Flóru menningarhúsi og fjárframlögum almennings.