Fara í efni
Menning

Marísól og leitin að gleðinni í Freyvangi

Sólveig María Svana Haraldsdóttir fer með hlutverk Marísólar og Hallur Örn Guðjónsson er bangsinn Viktor. Ljósmyndir: Bubbi Photography.

Nýtt frumsamið jólaverk, Marísól og leitin að gleðinni, verður frumsýnt hjá Freyvangsleikhúsinu á morgun, föstudaginn 20. nóvember. Verkið er eftir Jóhönnu S. Ingólfsdóttur, sem jafnframt leikstýrir, og tónlistin er eftir Eirík Bóasson.

Þetta er í fimmta sinn sem Jóhanna leikstýrir barnaverki fyrir jólin hjá Freyvangsleikhúsinu. Þá er þetta í fjórða sinn sem hún og Eiríkur vinna saman að tónlist og leikverki. Jóhanna segir við akureyri.net að sér hafi fundist einfalt að velja boðskap fyrir jólaleikrit undanfarinna ára. „Það snýst um að tengja við eitthvað sem allir þekkja og hafa gengið í gegnum,“ segir Jóhanna. „En þegar ég skrifaði út þetta verk þá gerði ég mér ekki grein fyrir hvað það yrði mér mikilvægt að hafa ákveðið að þetta aðventuævintýri ætti að hafa boðskap um gleði. Það að vera leiður yfir einhverju sem er ekki eða sem maður hefur ekki, þýðir samt ekki að ég geti ekki glaðst yfir því sem er. Gleðin leynist nefnilega í svo mörgu og þá sérstaklega í öllu í kringum okkur, öllu sem við gefum af okkur og öllu sem við fáum til okkar,“ segir hún.

Sýningin hefur sérstaka þýðingu að þessu sinni, því Eiríkur lést aðeins viku eftir að búið var að skipa í hlutverk. Tónlistin í verkinu er því sú síðasta sem hann samdi. Hermann Arason mun stýra tónlistinni af alúð ásamt þremur öðrum hljóðfæraleikurum í hljómsveit sýningarinnar.

„Eiki Bó var mikill tónlistarmaður, vinur minn, og ávallt reiðubúinn að vinna með mér. Það að setja þessa sýningu upp án hans hefur verið skrítið, þar sem hann lést einungis tveim dögum eftir fyrsta samlestur,“ segir Jóhanna og kveðst einstaklega þakklát Hermanni Arasyni og öðrum hljómsveitarmeðlimum fyrir að hafa tekið tónlistina að sér. „Eiki er búinn að vera með mér í huga og hjarta í öllu æfingaferlinu og minnir mig á að gleðjast yfir litlu hlutunum sem og að finna gleðina hjá öðrum,“ segir Jóhanna.

Ferðalag í leit að gleðinni

Verkið segir hugljúfa jólasögu af tíu ára stúlku sem heitir Marísól. Hún er döpur yfir jólunum fram undan því pabbi hennar, sem er sjómaður, þarf að vinna um jólin.

Á Þorláksmessukvöldi, eftir að Marísól er sofnuð, vaknar uppáhaldsbangsinn hennar, Viktor, til lífsins. Hann fer með henni í ferðalag í leit að gleðinni. Á leiðinni hitta þau fjölbreytt fólk sem hefur ólíkar hugmyndir um hvar gleðina sé að finna. Smám saman kemur þó í ljós að gleðin leynist oft í litlu hlutunum, í því sem við gerum fyrir aðra og í því sem kemur frá hjartanu.

Með sögunni er því dregin fram sú hugmynd að gleðin þurfi ekki að vera fólgin í stórum gjöfum eða viðburðum, heldur geti hún birst í hversdagslegum augnablikum og hlýju í garð annarra.

Verkið er rúmur klukkutími að lengd með hléi og hentar því vel fyrir yngstu kynslóðina. Uppselt er á frumsýninguna en miða á aðrar sýningar er hægt að nálgast á tix.is.