Mannfólkið breytist í slím í vikunni

Menningarhátíðin Mannfólkið breytist í slím fer fram í áttunda skipti í vikunni, 17. - 19. júlí. Hátíðin er kennd við listakollektífið MBS sem hana heldur og hefur gert árlega síðan 2018. MBS hefur verið starfandi á Akureyri frá árinu 2010 og á þeim tíma staðið fyrir reglulegu viðburðahaldi auk tónlistarútgáfu sem nú telur 20 plötur. Helsta markmið MBS er að auðga menningarlífið norðan heiða á forsendum svæðisins með áherslu á jaðarkúltúr og listafólk utan meginstrauma, segir í fréttatilkynningu.
MBS er sífellt á hreyfingu
Hátíðin fer aldrei fram á sama stað, en listakollektífið tekur sig til og breytir nýju iðnaðarrými í tónleikastað fyrir hátíðina hverju sinni. Í ár verður hátíðin haldin að Kaldbaksgötu 9. Sú nálgun að taka yfir iðnaðarrými krefst mikillar vinnu við framleiðslu og uppsetningu auk þess sem vinnan er mannaflsfrek en stuðlar hinsvegar að einstökum hughrifum gesta og stemningu sem er sér á báti meðal menningarviðburða á Norðurlandi, segir enn fremur í tilkynningunni.
Mannfólkið breytist í slím er tileinkuð jaðar- og grasrótarmenningu þar sem sérstakur fókus er á listafólk úr héraði. Hátíðin er fyrst og fremst helguð tónlist en hefð hefur skapast fyrir gjörningalist í bland við tónlistaratriði auk atriða sem dansa mitt á milli listformanna tveggja. Mynd: aðsend.
Mikil áhersla á heimafólk
Að jafnaði er miðað við að fjölbreytni atriða sé sem mest innan þess víða mengis sem jaðarkúltúr er. Einnig skulu tveir þriðju hlutar atriða á viðburðum MBS vera úr héraði, kynjahlutföll þátttakenda skulu vera sem jöfnust og allt listafólk fær greitt fyrir framkomu sína. Aldrei hefur verið krafist aðgangseyris að hátíðinni en verkefnið er rekið fyrst og fremst á sjálfboðavinnu, styrkjum og frjálsum framlögum gesta.
Engin önnur menningarhátíð sem haldin er á landsbyggðinni býður upp á jafn langa dagskrá þar sem þorri atriða er úr nærumhverfinu, segir í tilkynningunni. Oftast þegar tónlistarhátíðir eru haldnar á landsbyggðinni er verið að flytja listafólk úr höfuðborginni yfir á strjálbýlli svæði. Markmið MBS með Mannfólkið breytist í slím er að snúa þessu við og bjóða framúrskarandi listafólki annarsstaðar að í bland við fjölbreyttan hóp norðlensks listafólks sem svo mætast í suðupotti grasrótarinnar þar sem allir gestir geta fundið eitthvað við sitt hæfi auk þess að uppgötva eitthvað nýtt og spennandi.
Tónleikagestur MBS fær flugferð undir hressandi tónum frá Drengnum Fengnum, sem mætir aftur í ár. Mynd: aðsend
Veisla grasrótarsenunnar fyrir norðan
Ætlunin er að skapa sterka hefð fyrir öflugri menningarhátíð utan meginstrauma á Akureyri sem efla megi listalíf svæðisins til frambúðar og skapa þannig tækifæri fyrir ungt listafólk til að koma fram í bland við reyndara. Markmið hátíðarinnar Mannfólkið breytist í slím er ekki að stækka ár frá ári heldur að auka gæði hátíðarinnar eftir því sem fram líður og fóstra senu í höfuðstað Norðurlands.
Engin miðasala er á Mannfólkið breytist í slím heldur er gestum frjálst að styrkja MBS eftir hentisemi.
Dagskrá Mannfólkið breytist í slím 2025:
Fimmtudagurinn 17. júlí
- 20:00 Cohortis
- 20:40 Ólöf Rún
- 21:30 Hugarró
- 22:20 Daveeth
Föstudagurinn 18. júlí
- 20:00 Show Guilt
- 20:40 Setningarathöfn – Egill Logi Jónasson verndari MBS 2025
- 21:00 gubba hori
- 22:00 Pitenz
- 23:00 Saint Pete
- 23:45 Kött Grá Pjé
- 00:45 In3dee
Laugardagurinn 19. júlí
- 20:00 Melodi
- 20:40 Alter Eygló
- 21:30 Biggi Maus & MeMM
- 22:30 Duft
- 23:30 Gróa
- 00:30 MC Myasnoi
- 01:30 Lu_x2
Samstarfs- og styrktaraðilar MBS 2025 eru: Akureyrarbær, Uppbyggingarsjóður Norðurlands eystra, KEA, Tónlistarsjóður, Prentmet/Oddi, Norðurorka, Segull 67, HS Kerfi, Akureyri Backpackers, Aflið & Rás 2.