Fara í efni
Mannlíf

Magnaður Mugison í góðum gír – MYNDIR

Mynd: Daníel Starrason

Mugison hélt tónleika í Lystigarðinum á Akureyri síðdegis á laugardaginn þar sem hann lék öll sín þekktustu lög og nokkur ný að auki. Tónlistarmaðurinn sagði góðar sögur á milli laga eins og hans er von og vísa, við góðar undirtektir fjölda tónleikagesta. Veðrið var gott; Akureyrarlognið var að vísu nokkuð að flýta sér utan garðsins en trén sem umlykja flötina syðst í Lystigarðinum gerðu það að verkum að viðstaddir nutu þess í logni og blíðu sem Vestfirðingurinn magnaði bauð upp á.

Daníel Starrason mætti með myndavélina eins og á allflesta tónleika sem fram fara á Akureyri og deilir stemningunni með lesendum í meðfylgjandi myndasyrpu.

Skammt er stórra högga á milli því um næstu helgi, frá föstudegi til sunnudags, verður Sumar og bjórhátíð LYST á sama stað, „helgi full af bjór, mat, tónlist og góðri stemningu um allan bæ – með LYST í Lystigarðinum sem aðalmiðju hátíðarinnar,“ eins og segir í tilkynningu.