Lýðheilsustefnan sett í íbúasamráð
Drög að lýðheilsustefnu Akureyrarbæjar hafa nú verið sett í íbúasamráð. Markmið stefnunnar er að efla heilsu og vellíðan íbúa á öllum æviskeiðum og stuðla að samfélagi sem styður við andlega, líkamlega og félagslega heilsu. Íbúar eru hvattir til að kynna sér stefnuna og senda inn ábendingar og tillögur fyrir 24. apríl.
Í stefnunni er gert ráð fyrir að farið verði í allt að 10 aðgerðir á ári á gildistíma hennar. Í stefnunni eru lagðar fram tillögur að aðgerðum fyrir yfirstandandi ár, en markmið íbúasamráðsins er meðal annars að gefa íbúum kost á að hafa áhrif á hvaða aðgerðir verði valdar og hvernig þeim verði forgangsraðað.
Í frétt á vef Akureyrarbæjar er hlekkur á 10 blaðsíðna skjal sem inniheldur drögin að lýðheilsustefnunni og aðgerðaáætlun. Þar kemur einnig fram að hægt er að senda inn ábendingar og tillögur gegnum rafrænt umsagnareyðublað og hlekk á það eyðublað er einnig að finna í fréttinni. Einnig er QR-kóði á forsíðu stefnuskjalsins sem vísar beint inn á umrætt eyðublað.
„Með virkri þátttöku íbúa er lagður grunnur að lýðheilsustefnu sem endurspeglar þarfir og vilja samfélagsins og styður við öflugt og heilbrigt sveitarfélag til framtíðar,“ segir í frétt Akureyrarbæjar.