Mannlíf
LP safn Gunna og óklókur plötuþvottur
09.06.2025 kl. 11:30

Gunni bróðir sagði mér að Bítlarnir væru hættir. Og af því að hann var auðvitað fimm árum eldri en ég, skildi ég lítið sem ekkert í þessum skælum hans. Varla gæti það verið endir alls á Syðri-Brekkunni þótt einhver hrynsveit út í Bretlandi væri að ljúka störfum, eins og karl faðir okkar hafði haft á orði við hann.
Þannig hefst 83. pistill Sigmundar Ernis Rúnarssonar, rithöfundar, sjónvarpsmanns og alþingismanns, í röðinni Akureyri æsku minnar. Nýr pistill birtist á Akureyri.net á hverjum mánudegi.
En Gunni var heltekinn, eins og það hét um 1970, hafði safnað sérhverri plötu sveitarinnar frá því hann mundi eftir sér, og átti þær allar að tölu, að hann hélt, en var þó alltaf að telja, að því ég man.
Pistill dagsins: LP