Fara í efni
Fréttir

Lögregla varar enn við svikapóstum

Lögreglan á Norðurlandi eystra hefur gefið út tilkynningu þar sem varað er við svikapóstum sem verið er að senda út um þessar mundir. Með tilkynningunni fylgir mynd af bréfi sem send hafa verið út í nafni Ríkislögreglustjóra, þar sem viðtakanda er tilkynnt um að rannsókn bendi til þess að viðkomandi hafi framið ýmis kynferðisbrot og þar með að viðkomandi beri að svara með tölvupósti innan sólarhrings frá móttöku tilkynningarinnar á netfang sem gefið er upp. Þessum póstum eiga viðtakendur alls ekki að svara því hér er um fölsun og svikapóst að ræða. 
 
Lögreglan bendir fólki á að telji það sig hafa orðið fyrir svikum af þessu tagi og hafa tapað fjármunum að hafa samband tafarlaust við sinn viðskiptabanka til að fá ráðgjöf og í framhaldinu að tilkynna málið til lögreglu. Þá er einnig minnt á netbrotagáttina sem finna má undir „samfélag og réttindi“ á island.is. Þar getur fólk bæði tilkynnt netbrot til lögreglu sem og tilraunir til slíkra brota.
 
 
 
Í bréfinu, sem er ritað í nafni Ríkislögreglustjóra með undirskrift Höllu Bergþóru Björnsdóttur og stimpli þar sem meðal annars stendur „Lýðveldið Ísland“ er vísað í að lögregla hafi, eftir atvikum í samstarfi við Interpol og Europol, hafið frumrannsókn á viðtakanda bréfsins sem hluta af „markvissri aðgerð gegn auknum brotum sem framin eru á Netinu, þar á meðal barnaklámi, kynferðislegri misnotkun barna á netinu, klámi, sjónauka- og myndatökubroti (voyeurism) og kynferðisofbeldi.“ Vísað er til þess að í kjölfar þess að Epstein-málið kom upp hafi „íslensk lögregla, í samstarfi við ríkissaksóknara, íslensk stjórnvöld og evrópsk yfirvöld, tekið upp stefnu um algert umburðarleysi gagnvart kynferðisbrotum og netglæpum.“
 
Viðtakandanum er tilkynnt að rannsóknaraðgerðir hafi „leitt í ljós og staðfest ýmis samhljóða gögn sem benda til þátttöku yðar í þeim atvikum sem þessi málsmeðferð tekur til,“ og svo framvegis.
 
Bréfið sem lögreglan vísar til: